Inniloft

Á Vesturlöndum ver fólk um og yfir 90% af tíma sínum innandyra, svo sem á heimilum, í skóla og á vinnustöðum. Loftgæði innandyra hafa því mikil áhrif á líðan okkar og heilsu. Fyrir  40 - 50 árum síðan fór athygli manna víða um heim að beinast í auknum mæli að gæðum innilofts og tengslum þess við líðan og heilsu fólks. Nú hefur verið sýnt fram á að ýmsir mengandi þættir í innilofti geta valdið einkennum frá öndunarfærum, ofnæmi og ertingu. Viðkvæmir hópar eins og börn, aldraðir og sjúkir eru næmari fyrir mengun í innilofti en aðrir.

Mörg efni sem valda vanlíðan geta verið í lofti innandyra.  Í ryki í húsum er að finna húðfrumur, örverur, gró, dýrahár og fleiri agnir. Utan á rykagnirnar festast svo rökgjörn efni sem gufa frá byggingarefnum, innréttingum, húsgögnum, textilvöru og gólfteppum auk  hreinsiefna, ilmefna og fleiri efna sem er að finna á heimilum í dag. Ef mikill raki er viðvarandi í húsum veldur það skemmdum á byggingarefni og húsmunum  en  auk þess skapast  þá góð vaxtarskilyrði fyrir myglu og aðrar örverur, en það eru þættir sem hafa slæm áhrif á inniloft.

Niðurstöður fjölda erlendra rannsókna hafa leitt í ljós að sjaldnast er hægt að benda á einn ákveðinn þátt í innilofti sem framkallar vanlíðan eða veikindi heldur  virðist fremur vera um að ræða samspil margra þátta. Undantekning er þó ofnæmi sem hægt er að  tengja við rykmaura og pelsdýr. Einkennin eru margs konar og einstaklingsbundin. Þannig finna margir ekki fyrir neinu meðan öðrum líður illa í sama umhverfi. Helstu einkenni sem slæmt inniloft getur framkallað er allt frá ertingu í augum og slímhimnu, flökurleika, svima,  höfuðverks og óeðlilegrar þreytu til ósérhæfðra ofnæmisviðbragða.

Góð ráð

Loftræstu reglulega. Gott er að láta blása hressilega í stutta stund í einu til að fá hreint loft inn í rýmið. Ekki er mælt með því að hafa glugga opinn að staðaldri því slíkt er sóun á hita og þar með fjármunum.

Láttu lofta vel um nýja hluti fyrstu vikurnar. Rokgjörn efni gufa upp frá nýjum hlutum eins og húsgögnum og raftækjum. Forðast skal að hafa raftæki í svefnherbergjum.

Ekki loka inni raka. Raki af völdum leka, of lítillar loftræsingar eða vegna þess að verið er að þurrka þvott í íveruherbergjum skapar örverum góð vaxtarskilyrði sem getur leitt til þess að þær fara að mynda gró, ertandi efni  og jafnvel eitur. Mikill raki eykur einnig útgufun efna frá ýmsum hlutum.

Þrífðu reglulega. Ýmis efni leynast í rykinu sem ekki er æskilegt að anda að sér

Hugaðu vel að viðhaldi húsnæðisins. Mikilvægt er að koma í veg fyrir leka sbr. umfjöllun um raka hér að ofan. Þegar ráðist er í nýbyggingu, breytingar eða viðhald húsnæðis er rétt að skoða hvaða þættir í byggingu/breytingu húsnæðisins hafa áhrif á inniloft þess.

Upplýsingar um inniloft af heimasíðu Miljøstyrelsen í Danmörku. 

Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið