Meðganga og börn

Allt í kringum okkur eru efni og verðum við fyrir mismunandi áhrifum af þeim. Börn eru smávaxin og mun næmari fyrir efnum í umhverfinu en fullorðnir. Einnig er mikilvægt að varast skaðleg efni á meðgöngu. Því miður geta vörur fyrir börn innihaldið efni sem geta verið skaðleg heilsu og umhverfi.  Á þessari síðu má finna góð ráð til að forðast þessi efni. Best er að kynna sér innihaldsefnin og læra að þekkja þau sem á að varast. Auk þess skal ekki hika við að spyrja starfsfólk verslana um hvort þeir selji umhverfisvottaðar vörur.

 

  • FatnaðurNý föt geta innihaldið skaðleg efni sem komast í snertingu við húð barnsins.
    Nánar
  • HávaðiBörn geta orðið fyrir neikvæðum áhrifum af hávaða í sínu nánasta umhverfi eins og við leik á heimili, í daggæslu, leikskóla og skóla.
    Nánar
  • LeikföngReglulega finnast leikföng á markaði sem innihalda of mikið af varasömum efnum eins og t.d. þalötum og þungmálmum.
    Nánar
  • Öryggi á leiksvæðumEitur sem er í fúavörðu timbri smitast smám saman út í umhverfið.
    Nánar
  • Meðganga og ungabörnSnuð og pelar geta innihaldið þalöt sem geta valdið röskun á hormónajafnvægi líkamans og haft þannig áhrif á kynþroska og frjósemi.
    Nánar
Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið