Leikföng

Mörgum börnum finnst andlitsmálun ómissandi hluti að Öskudagsskemmtuninni og 17. júní. Hér þarf þó að vanda valið og nota eingöngu málningu sem ætluð er börnum. Á Íslandi, eins og annars staðar í Evrópu, gildar strangar reglur um andlitsmálningu sem eiga að tryggja að vörurnar valdi ekki heilsutjóni við eðlilega notkun. Andlitsmálning á að uppfylla kröfur sem gerðar eru til bæði snyrtivara og leikfanga.
Andlitsmálning getur innihaldið varasöm efni eins og t.d. litarefni, rotvarnarefni og/eða ilmefni. Ýmis litar- og ilmefni geta valdið ofnæmi og rotvarnarefni eins og t.d. paraben hafa sýnt hormónaraskandi áhrif. Ef barnið þitt hefur óþol eða ofnæmi fyrir ákveðnum efnum er rétt að lesa vel innihaldslýsinguna fyrir andlitsmálninguna, en hún á að vera til staðar á umbúðunum.
Góð ráð til að forðast varasöm efni í andlitsmálningu
- Lestu innihaldslýsinguna áður en þú kaupir. Ef hún er ekki til staðar skaltu spyrja um hana. Hægt er að slá upp efnaheitum og fá upplýsingar um verkun efnanna á netinu, t.d. hjá Environmental Working Group og Forbrugerkemi.
- Veldu vörur án ilmefna (parfum)
- Veldu CE-merktar vörur. CE-merkið er yfirlýsing framleiðandans um að varan uppfylli grunnkröfur Evrópu um öryggi leikfanga.
- Berðu feitt krem á andlit barnins áður en andlitsmálningin er borin á.
- Vandaðu þig við að þrífa málninguna af.
Upplýsingar um andlitsmálun frá Klima- og forureiningsdirektoratet í Noregi.
Upplýsingar um andlitsmálun frá Miljøstyrelsen í Danmörku.
Reglur um leikfangaframleiðslu eru mjög strangar en þrátt fyrir það innihalda sum leikföng efni sem geta verið hættuleg bæði heilsu barnsins og umhverfinu. Flest leikföng á heimsmarkaði í dag eru framleidd í Asíu og um 80% af leikföngum í íslenskum verslunum eru framleidd í Kína. Á þessum mörkuðum ríkir mikil samkeppni og fara sumir framleiðendur ekki eftir settum reglum um efnainnihald. Því finnast reglulega leikföng á markaði sem innihalda of mikið af varasömum efnum eins og t.d. þalötum og þungmálmum.
Hættan á heilsutjóni er mest ef varan er notuð á rangan hátt, t.d. ef barn borðar eða sýgur slíka hluti
Góð ráð þegar velja á leikfang
- Ekki kaupa leikföng með sterka lykt því ilmefnin geta valdið ofnæmi
- Veldu CE merkt leikfang sem er yfirlýsing framleiðandans um að leikfangið uppfylli grunnkröfur Evrópu um öryggi leikfanga.
- Gott er að þvo leikföng upp úr í heitu vatni og mörg leikföng passa jafnvel í uppþvottavélina, þannig er hægt að lágmarka áhrif innihaldsefnanna á barnið
- Forðastu að kaupa óvönduð leikföng eða eftirlíkingar. Þó þau séu oftast ódýrari þá eyðileggjast þau fljótt og enda í ruslinu.
- Neytendastofa upplýsir reglulega á heimasíðu sinni um hættulegar vörur á markaði í Evrópu, þar á meðal leikföng.
Upplýsingar um leikföng (Noregur)
Dönsk yfirvöld hafa rannsakað mikið af sjálflýsandi leikföngum. Stjörnur, sem hægt er að líma í loft og á veggi, innihalda ekki hættuleg efni og eru heldur ekki hættulegar þegar þær lýsa. Sjálflýsandi hálsbönd, sem eru gerð úr þunnum plastslöngum sem innihalda sjálflýsandi vökva, geta aftur á móti verið hættuleg. Þessi vökvi er blanda margra efna og þar á meðal geta verið þalöt sem bönnuð eru í leikföngum ætluðum smábörnum.
Sjálflýsandi hálsbönd eru sjaldan holl fyrir börn.
Mótunarleir inniheldur og getur gefið frá sér margskonar efni. Sumar tegundir leirs eru gerðar að verulegu leyti úr PVC plasti að viðbættu mýkingarefni sem getur haft slæm áhrif á heilsu. Hættan á heilsutjóni eykst ef barnið borðar leirinn eða sleikir leiruga fingur. Mótunarleir er ekki fyrir svo lítil börn að hætta sé á að þau borði hann. Lesið leiðbeiningar, farið eftir aldursmörkum á notkun og skýrið út fyrir börnunum hvernig á að nota/ekki nota leirinn. Þvo skal hendur eftir leik með mótunarleir. Ætilegar fígúrur er hægt að baka úr t.d. bollu- eða piparkökudeigi.
Upplýsingar um mótunarleir af heimasíðu Miljøstyrelsen í Danmörku.
Í rafmagnsleikföngum má finna ýmis efni, bæði í rafbúnaði og plasti, sem geta verið skaðleg bæði heilsu og umhverfi. Efnin myndast við framleiðsluna og leka lítið út í umhverfið á meðan á notkun stendur en þegar henda á leikfanginu skal fara með það í endurvinnslustöð þar sem því er fargað á öruggan hátt. Skilaðu rafhlöðum í sérstaka kassa sem hægt er að finna á bensínstöðum því ef þeim er fleygt með almennu sorp þá myndast hættulegur úrgangur.
Upplýsingar um rafmagnsleikföng frá Klima- og forureiningsdirektoratet í Noregi.
Plastmótel, perlur, málning og litir geta innihaldið varasöm efni og því þarf að gæta þess að kaupa vörur sérstaklega ætluð fyrir börn því reglur um efni í vörum fyrir börn eru strangari en fyrir fullorðna. Gott er að reyna að forðast að börn máli á húðina, nema um sérstaka andlitsliti sé að ræða, eða setja hluti upp í sig. Módelvörur mega innihalda leysiefni. Þegar lífrænt leysiefni gufar upp getur það valdið langvarandi skaða á heilsu fólks og umhverfi.
Upplýsingar um módelvörur frá Klima- og forureiningsdirektoratet í Noregi.
Mjúkir plasthlutir innihalda oft þalöt sem eru afar óæskileg efni og geta valdið varanlegum skaða á heilsu barna sem stinga þeim upp í sig og sjúga eða naga. Slíkir hlutir eru oft í umhverfi barna hvort sem það eru leikföng (t.d. plastendur, bækur, boltar) eða aðrir hlutir sem notaðir eru af börnum (t.d. dýnur, föt, ábreiður, smekkir, áhöld, uppblásanlegir hlutir eins og kútar). Sumir hlutir eru beinlínis til þess gerðir að börn stingi þeim upp í sig (t.d. snuð, túttur, naghringir).
Þalöt eru notuð saman við PVC plast til að mýkja plastið. Komið hefur í ljós að nokkur algengustu þalötin sem notuð eru í þessum tilgangi geta dregið úr frjósemi með því að líkja eftir kynhormónum í líkamanum og dregið úr eðlilegum þroska lítilla barna og á fósturskeiði. Þalöt hafa áratugum saman verið notuð í þeim tilgangi að mýkja hluti úr PVC plasti. Þau hafa mikið verið rannsökuð og enginn efast lengur um þann skaða sem þau geta valdið börnum. Ef hlutir úr mjúku plasti eru til á heimili er rétt að gæta þess að lítil börn stingi þeim ekki upp í sig. Stundum getur þurft að meta hvort barn sé líklegt til þess að stinga hlutum upp í sig til þess að átta sig á því hvað er óhætt að hafa í seilingarfjarlægð frá barni. Ef það eru leikföng sem börn handfjatla oft getur þurft að fjarlægja leikfangið ef ekki er ljóst hvort það innihaldi þalöt. Það getur einnig átt við um hluti í næsta nágrenni barnsins sem eru ekkert endilega þess eðlis að barn handfjatli eða leiki með.
Nokkur þalöt hafa undanfarin ár verið bönnuð í leikföngum og umönnunarvörum barna. Banni var upphaflega komið á árið 2000 og hefur síðan tekið smávægilegum breytingum þannig að nú nær það yfir plasthluti sem ætlaðir eru til notkunar af börnum sem eru yngri en fjórtán ára en ekki þriggja ára eins og áður var. Þalöt eru samt ekki bönnuð alls staðar og enn eru að mælast þalöt í vörum sem ætluð eru til notkunar af börnum sem eru líkast til eru framleidd í Asíu.
Upplýsingar um leikföng án PVC-plasts eða þalata frá Miljøstyrelsen í Danmörku.




