Dýravernd

Samkvæmt dýraverndarlögum fer umhverfisráðherra með yfirstjórn mála er varða dýravernd. Umhverfisstofnun hefur, í umboði ráðherra, eftirlit með framkvæmd dýraverndarlaga og tengdum reglugerðum.

Hlutverk Umhverfisstofnunnar er að grunni til tvíþætt, þ.e. að gera tillögur til ráðherra um setningu reglugerða og annarra stjórnvaldsfyrirmæla á grundvelli dýraverndarlaganna auk þess að gefa út rekstrarleyfi fyrir starfssemi með dýr í atvinnuskyni og sjá til þess að samræmt eftirlit sé haft með slíkum rekstri. Þar að auki hvílir á Umhverfisstofnun sú ábyrgð að vinna að aukinni meðvitund og fræðslu um dýravernd meðal almennings.

Umhverfisstofnun vinnur náið með embætti Yfirdýralæknis, sem í umboði Landbúnaðarráðherra hefur umsjón með þeim hluta dýraverndarmála er snerta búfé. Sameiginlegt markmið Umhverfisstofnunar og embættis Yfirdýralæknis er því að tryggja dýrum góðan aðbúnað og ábyrga meðferð.

Góð og gagnkvæm samskipti við dýraverndarsamtök, hagsmunaaðila og aðra sem deila með okkur áhuga á aðbúnaði og meðferð dýra eru að mati Umhverfisstofnunnar mikilvæg og er það ósk stofnunarinnar að eiga náið samstarf við þá aðila sem málaflokkurinn snertir. Það er einnig mikilvægt að fylgjast grannt með þróun mála varðandi skipan og áherslur dýraverndarmála hjá helstu nágrannaþjóðum okkar.

Eftirlit í samræmi við kröfur

Eftirlit í samræmi við kröfur

Eftirlit með mengandi starfsemi fór í gegnum athugun IMPEL samtakanna.
Meira