Alcoa-Fjarðarál, Reyðarfirði
Upplýsingar um rekstur frá starfsleyfishafa
Hjá álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði starfa um 480 manns við að framleiða um 350.000 tonn af áli á ári við einhverjar fullkomnustu aðstæður sem þekkjast í þessari atvinnugrein í heiminum. Að auki starfa á álverssvæðinu um 320 manns á vegum verktaka þannig að störfin á álverssvæðinu eru að jafnaði um 800. Notast er við bestu fáanlegu tækni og hráefni á öllum sviðum, hvort sem það er við framleiðsluna sjálfa eða við mengunarvarnir, svo dæmi séu tekin. Alcoa Fjarðaál leggur megináherslu á öryggi starfsmanna sinna, umhverfismál og að vera virkur þátttakandi í sjálfbæru samfélagi.
Fjarðaál er dótturfélag bandarísku samsteypunnar Alcoa Inc. sem er almenningshlutafélag með starfsstöðvar í 34 löndum. Álverið í Reyðarfirði er nýjasta álver samsteypunnar, eitt af þeim stærstu og jafnframt hið fullkomnasta. Fjarðaál leggur áherslu á gott samstarf við heimamenn og stuðning við samfélagið, enda byggist viðgangur fyrirtækisins á því að umhverfi þess sé öflugt og vaxandi. Hjá Fjarðaáli er framleitt hreint gæðaál og ýmiss konar álblöndur fyrir margvíslega iðnaðarframleiðslu. Málmurinn er m.a. steyptur í T-barra og hleifa, ásamt melmisstöngum, en um fjórðungur framleiðslunnar fer í fullvinnslu á álvírum sem notaðir eru í háspennustrengi. Álverið fær orku frá Kárahnjúkavirkjun og hefur gert raforkusamning við Landsvirkjun til 40 ára.
Helstu umhverfiskröfur
Magn mengunarefna í útblásturslofti (hreinsuðu gasi frá kerum og ræstilofti frá kerskála) skal ekki vera yfir neðangreindum mörkum miðað við heildarframleiðslu álversins:
| Mengunarefni |
Ársmeðaltal kg/t Al |
Mánaðarmeðaltal kg/t Al |
| Heildarflúoríð |
0,35 |
0,80 |
| Ryk |
1,0 |
1,3 |
| Brennisteinssambönd* |
18,0 |
18,5 |
| - brennisteinsdíoxíð frá forskautum |
13,5 |
14,0 |
| - brennisteinsdíoxíð frá súráli |
3,0 |
3,0 |
Losun flúorkolefna skal frá og með 1. janúar 2011 vera innan við 0,140 tonn af koldíoxíðígildum á framleitt tonn af áli mælt sem ársmeðaltal.
Frekari upplýsingar um kröfur og eftirlit er að finna í starfsleyfinu sem gildir til 1. desember 2026.
Eftirlitsskýrslur
Mælingar og vöktun
- Mælingar, október - desember 2011
- Mælingar, júli - september 2011
- Mælingar, april - júní 2011
- Mælingar, janúar - mars 2011




