Rio Tinto Alcan, Straumsvík
Upplýsingar um rekstur frá starfsleyfishafa
Álverið í Straumsvík (ISAL) er hluti af Rio Tinto Alcan, einum stærsta álframleiðanda heims. Fyrirtækið framleiðir hágæðaál í samræmi við óskir viðskiptavina, alls hátt í 200 vörutegundir, sem eru fullunnar til völsunar. Álið úr Straumsvík er notað í ýmsar sérhæfðar afurðir, svo sem húsaklæðningar, lyfja- og snyrtivöruumbúðir, og bifreiðar. Stærstu viðskiptavinir fyrirtækisins eru í Þýskalandi.
ISAL er með vottuð gæða-, umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi samkvæmt alþjóðlegu stöðlunum ISO 9001, ISO 14001 og OHSAS 18001.
Framleiðsla hófst í álverinu árið 1969 og nemur nú 190.000 tonnum á ári, eða um 500 tonnum á dag. Starfsmenn eru um 450 auk fjölda verktaka.
Hugvit, þekking og kunnátta starfsmanna gegnir lykilhlutverki við framleiðslu áls í Straumsvík. Fyrirtækið setur umhverfis-, öryggis- og heilbrigðismál í öndvegi og vinnur stöðugt að umbótum á verkferlum og vinnuaðferðum. Áhersla er lögð á að starfa í góðri sátt við umhverfið og samfélagið sem fyrirtækið er hluti af.
Helstu umhverfiskröfur
Magn mengunarefna í útblásturslofti (hreinsuðu gasi frá kerum og ræstilofti frá kerskála) fyrir 200 þúsund tonna framleiðslu skal ekki vera yfir neðangreindum mörkum:
| Mengunarefni | Ársmeðaltal | Skammtímameðaltal* |
| kg/t Al | kg/t Al | |
| Heildarflúoríð | 1,0 | 1,4 |
| Ryk | 1,5 | 2,0 |
| Brennisteinsdíoxíð | 21 | 21 |
*Skammtímameðaltal er skilgreint í töflu í grein 3.1 eða í áætlun samþykktri af Umhverfisstofnun.
Losun flúorkolefna skal að jafnaði vera innan við 0,14 tonn af koldíoxíðígildum á framleitt tonn af áli frá og með fjórða framleiðsluári hverrar framleiðslulína. Dregið skal úr losun annarra efna eins og kostur er. Losun lífrænna efna skal eftir því sem við á vera í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 255/2002, um takmörkun á útstreymi rokgjarnra lífrænna efna vegna notkunar á lífrænum leysiefnum í tiltekinni starfsemi.
Nánari upplýsingar um kröfur og eftirlit er að finna í starfsleyfinu sem gildir til 1. nóvember 2020.
Eftirlitsskýrslur
Þvingunarúrræði
Mælingar og Vöktun
- Vöktun, Kræklingarækt, janúar 2012
- Mælingar, janúar - mars 2012
- Mælingar, október - desember 2011
- Mælingar, júlí - ágúst 2011
- Mælingar, apríl - Júní 2011
- Mælingar, janúar - mars 2011




