HB Grandi, Berufirði
Upplýsingar um rekstur frá starfsleyfishafa
HB Grandi hf. er eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Íslands og hefur skipað sér í fremstu röð fyrirtækja á sínu sviði. Reynsla og þekking í nýtingu auðlindar og framleiðslu sjávarafurða endurspeglast í öllu starfi HB Granda. Lögð er rík áhersla á háþróaða tækni við veiðar og vinnslu og stöðuga þróun framleiðslunnar.
Fyrirtækið framleiðir verðmæta gæðavöru úr fersku hráefni sem aflað er úr hafinu við Ísland. Lögð er áhersla á góða umgengni um auðlindina og ábyrgar fiskveiðar.
HB Grandi stundar veiðar og vinnslu á bolfiski og uppsjávarfiski. Hjá fyrirtækinu vinna um 650 starfsmenn til sjós og lands. Afurðirnar eru seldar víða, en helstu markaðirnir eru Evrópa, Asía og Norður-Ameríka.
Starfsstöðvar fyrirtækisins eru í Reykjavík, á Akranesi og á Vopnafirði. Þá stundar fyrirtækið tilraunaeldi á þorski í Berufirði við Djúpavog.
Starfstöð HB Granda, Berufirði, hefur leyfi til þess að framleiða allt að 4000 tonn af laxi og allt að 4000 tonn af þorski á ári.
Helstu umhverfiskröfur
Upplýsingar um kröfur og eftirlit er að finna í starfsleyfinu sem gildir til 1. júlí 2027.
- Starfsleyfi HB Granda
- Greinargerð með útgáfu starfsleyfis fyrir kvíaeldisstöð HB Granda hf. í Berufirði




