Sorpstöðvar Fjarðarbyggð

Upplýsingar um rekstur frá starfsleyfishafa

Sorpstöð FjarðarbyggðarSorpstöð Fjarðabyggðar rekur 5 söfnunarstöðvar þ.e.  í Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.  Þar geta íbúar og smærri fyriræki losað úrgang samkvæmt  gjaldskrá.   Ein móttökustöð er í Fjarðabyggð sem staðsett er á Reyðarfirði,  Þar er hægt að losa stærri farma samkvæmt  gjaldskrá. Sorpstöð Fjarðabyggðar rekur tvo urðunarstaði í Þernunesi annarsvegar fyrir almennan úrgang og hinsvegar timburúrgang.  Eingöngu fyrirtækjum með starfsleyfi til þess að flytja úrgang er heimilt að losa úrgang beint á urðunarstað, í samráði við verktaka. Sorpstöð Fjarðabyggðar sér einnig um sorphirðu í öllum byggðarkjörnum Fjarðabyggðar samkvæmt tveggja tunnu kerfi sem tekið var upp í júní 2010.

Helstu umhverfiskröfur

Óheimilt er að urða fljótandi úrgang, hjólbarða, brotajárn eða spilliefni á urðunarsvæðunum. Starfrækja skal kerfi til að safna hauggasi sem myndast við rotnun lífrænna úrgangsefna. Rekstraraðili skal eftir fremstu megni leitast við að nýta gasið en brenna það ellegar. Söfnun og vinnsla á hauggasi telst endurnýting. Meta skal mánaðarlega mögulega losun lofttegunda (CH4, CO2, O2, H2S, H2 sbr. ákvæði reglugerðar 738/2003), þar sem gas myndast eða lífrænn úrgangur er urðaður. 

Starfsleyfi þetta gildir fyrir Sorpstöð Fjarðabyggðar, kt. 470698-2099, vegna urðunar á úrgangi í Þernunesi.

Upplýsingar um kröfur og eftirlit eru að finna í starfsleyfinu sem gildir 1.7.2018

Eftirlitsskýrslur

Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið