Sorpa Gufunesi
Upplýsingar frá starfsleyfishafa um reksturinn
SORPA er framsýnt þjónustufyrirtæki í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Starfsemi fyrirtækisins er margþætt. SORPA rekur sjö endurvinnslustöðvar, móttökustöð, urðunarstað og nytjamarkaðinn Góða hirðirinn. Fyrirtækið hefur seð um útflutning hráefnis til endurvinnslu sl. tuttugu ár með góðum árangri og er fræðsla og upplýsingagjöf til einstaklinga, hópa og fyrirtækja mikilvægur liður starfseminnar.
Helstu umhverfiskröfur
Starfsleyfi þetta gildir fyrir meðhöndlun úrgangsefna allt að 150.000 tonnum á ári. Óheimilt er að blanda spilliefnum við annan úrgang. Ef styrkur kvikasilfurs mælist meira en 0.03 mg/l, kadmíums meira en 0.05 mg/l og blýs meira en 0.1 mg/l í frárennsli þarf að fjölga mælingum og meta síðan hvort aðgerða sé þörf.
Frá og með 1. júní 2011 er eftirlit með þessari starfsemi hjá heilbrigðisnefnd. Heilbrigðisnefnd er jafnframt útgefandi starfsleyfis (sbr. 5. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs).
Nánari upplýsingar um kröfur og eftirlit er að finna í starfsleyfinu sem gildir til 31. desember 2012.




