Norðurá, Stekkjarvík
Upplýsingar um rekstur frá starfsleyfishafa
Urðunarstaðurinn Stekkjarvík er samstarfsverkefni sex sveitarfélaga í Austur -Húnavatnssýslu og Skagafirði sem stofnuðu byggðasamlagið Norðurá um verkefnið. Samningur hefur verið gerður við Flokkun Eyjafjörður ehf. um að taka sorp til urðunar af Eyjafjarðarsvæðinu og er hann ein af forsendum þess hvernig urðunarstaðurinn hefur verið byggður upp.
Lóð urðunarsvæðisins er 30 ha en fyrsti áfangi urðunarhólfs er 2,7 ha. Samtals verða um 6 ha teknir undir urðunarhólf í fjórum áföngum. Hólfið er 20 m djúpt og útgrafið jarðefni í 1. áfanga er 390.000 m3. Gert er ráð fyrir að þessi áfangi endist í allt að sex ár en næstu áfangar hlutfallslega betur þar sem miðja hólfsins, sem verður fyllt upp í lokin, er hluti af fyrsta áfanga.
Þjónustuhús er um 65 m2 og þjónustuplan við það 1.200 m2. Bílvog er 18,3 m og miðast við allt að 100 tonn.
Urðunarhólfið uppfyllir að öllu leyti umhverfis- og mengunarvarnarkröfur. Hólfið er klætt innan með sérstökum þéttidúk úr leirefni sem varnar því að sigvatn fari út í grunnvatn. Í botni hólfsins er sigvatnskerfi þar sem 600 m af götuðum lögnum veita öllu vatni inn í hreinsistöð sem er með sand- og olíuskilju og fellitönkum. Sýni verða tekin reglulega til að fylgjast með og skrá efnainnihald.
Í jöðrum hólfsins eru lagnir til að mæla myndun metangass. Gert er ráð fyrir fremur lítilli gasmyndun þar sem reiknað er með lágu hlutfalli af lífrænum úrgangi í sorpi, til dæmis verður sláturúrgangur ekki tekin til urðunar. Mælist hins vegar gas yfir þeim mörkum sem leyfileg eru verður það nýtt ef hagkvæmt þykir eða því eytt.
Upptökusvæði sorps sem tekið verður á móti í Stekkjarvík, er frá Gljúfurá í vestri að Vaðlaheiði í austri. Auk þess hefur þeim möguleika verið haldið opnum að sorp frá Húnaþingi vestra og hugsanlega Vestfjörðum geti komið til urðunar ef þess verður óskað. Árlegt magn er áætlað 10-15 þús. tonn en starfsleyfi heimilar allt að 21 þús. tonn á ári.
Urðunarstaðurinn er mótaður sem troglaga gryfja í jarðveginn og lagður vegur niður á botn hennar. Hönnun gerir ráð fyrir að urðunarhólfið verði fyllt upp frá botni og byrjað í norðvestur - horni þess. Þegar fylling er komin að suðaustur kanti hólfsins verði næsti áfangi grafinn en núverandi gryfja er einungis ¼ hluti þess sem áætlað er að verði tekið upp úr svæðinu fyrir urðun.
Helstu umhverfiskröfur
|
|
Sýnatökustaður |
Efnisþættir |
Tíðni* |
|
Magn sigvatns |
Við hreinsivirki |
Rennsli |
Mánaðarlega (einnig við hverja sýnatöku) |
|
Samsetning sigvatns |
a) Ofan hreinsivirkis |
Hitastig, leiðni, pH, súrefnisþörf (COD), uppleyst lífrænt kolefni (DOC), köfnunarefni (Nheild), ammóníum (NH4+), nítrat (NO3-), fosfór (Pheild), olía/fita, lífræn halógensambönd (AOX), klóríð (Cl-), flúoríð (F-), súlfat (SO4-2), BTEX, fenóltala, blý (Pb), kvikasilfur (Hg), kadmíum (Cd), járn (Fe), króm (Cr), kopar (Cu), sink (Zn), arsen (As), nikkel (Ni), baríum (Ba), mólýbden (Mo), antimóní (Sb), selen (Se), tin (Sn) |
Tvisvar á ári; |
|
Staða grunnvatns |
Mælibrunnar: |
Hæð grunnvatnsborðs |
Tvisvar á ári; |
|
Samsetning grunnvatns |
Mælibrunnar: |
Hitastig, leiðni, pH, ammóníum (NH4+), nítrat (NO3-), fosfór (Pheild), olía/fita, lífræn halógensambönd (AOX), blý (Pb), kadmíum (Cd), kvikasilfur (Hg), tin (Sn) |
Annað hvert ár |
|
Mengunarefni í sjávarseti |
Fínkornótt botnset í Stekkjarvík |
Blý (Pb), kadmíum (Cd), kvikasilfur (Hg), kopar (Cu), sink (Zn), króm (Cr), nikkel (Ni), arsen (As), lífræn halógensambönd (AOX) |
Annað hvert ár |
|
Samsetning yfirborðsvatns |
Dalalækur: |
Hitastig, leiðni, pH, súrefnisþörf (COD), köfnunarefni (Nheild), ammóníum (NH4+), nítrat (NO3-), fosfór (Pheild), fosfat (PO4-3), olía/fita, lífræn halógensambönd (AOX), blý (Pb), kadmíum (Cd), kvikasilfur (Hg), kopar (Cu), sink (Zn), króm (Cr), nikkel (Ni), arsen (As) |
Annað hvert ár |
|
Magn og samsetning hauggass |
Borholur/úttak söfnunarkerfis |
Þrýstingur, CH4, CO2, O2 |
Mánaðarlega |
|
Samsetning hauggass |
Borholur/úttak söfnunarkerfis |
H2S, H2 |
Fjórum sinnum á ári; |
Nánari upplýsingar um kröfur og eftirlit er að finna í starfsleyfin sem gildir til 26. nóvember 2026.
Eftirlitsskýrslur




