Sorpurðun Vesturlands
Upplýsingar um rekstur frá starfsleyfishafa
Sorpurðun Vesturlands hf. er stofnað árið 1997 og er alfarið í eigu sveitarfélaganna á Vesturlandi, sem eru 10 talsins. Megin tilgangur félagsins, skv. samþykktum, er móttaka og förgun á sorpi. Starfsstöð fyrirtækisins er í Fíflholtum á Mýrum þar sem móttaka og urðun á úrgangi fer fram.
Sorpurðun Vesturlands hf. mun leitast við að
- byggja upp og efla samstarf við sveitarfélögin sem að fyrirtækinu standa.
- stuðla að og efla samstarf við Samband ísl. sveitarfélaga um hagsmunamál sveitarfélaganna á sviði úrgangsmála.
- eiga samstarf við önnur sorpsamlög og aðra hagsmunaaðila, m.a. um gerð svæðisáætlana um meðhöndlun úrgangs og annað er lýtur að málaflokknum og eignaraðilar kunna að fela félaginu.
- nýta sem best og skynsamlegast urðunarsvæðið í Fíflholtum.
- haga starfsemi sinni ætíð í sem bestri sátt við umhverfið.
- hafa það sem megin markmið að taka fyrst og fremst sorp af Vesturlandi til urðunar. Gera má undantekningar á þessi ákvæði ef vel rökstuddar ástæður liggja til grundvallar.
- finna leiðir til að laga rekstur félagsins að fyrirsjáanlegum samdrætti í sorpmagni sem fer til urðunar, vegna vaxandi flokkunar og endurvinnslu úrgangs.
- Starfsleyfi þetta gildir fyrir urðun úrgangsefna, allt að 15.000 tonnum á ári, áurðunarsvæði í landi Fíflholta fyrir Sorpurðun Vesturlands h.f.,
Helstu umhverfiskröfur
Upplýsingar um kröfur og eftirlit eru að finna í starfsleyfinu sem gildir til 14.8.2012
Eftirlitsskýrslur




