Kalkþörungafélagið Bíldudal

Upplýsingar um rekstur frá starfsleyfishafa

Kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal

Íslenska Kalkþörungafélagið ehf, var stofnað af Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða árið 2001. Félagið stóð fyrir því að gerð var matsskýrsla á námi kalkþörungasets í Arnarfirði. Þann 17. Desember árið 2003 var skrifað undir vinnsluleyfi til handa félaginu. Umhverfisáhrif vinnslunnar voru metin og niðurstöður rannsókna voru jákvæðar. Ein af forsendum umhverfismatsins og þar með leyfisins var að úrvinnsla kalkþörungasetsins færi fram við Arnarfjörð og gert ráð fyrir að það yrði á Bíldudal. Sama ár tóku Írska fyrirtækið Celtic Sea Minerals Ltd. (75%) og Björgun hf. (25%) við rekstrinum.

Áætlað magn kalkþörungasets á þeim svæðum sem könnuð hafa verið er um 21,5 milljón m3.  Vinnsluleyfið sem gildir til 1. desember 2033 tekur til eftirtalinna þriggja svæða: Svæði 1 liggur meðfram ströndinni frá Bíldudal inn í botn Fossfjarðar, svæði 2 er í Reykjarfirði utanverðum og svæði 3 er sunnanvert Langanesgrunn. Starfsleyfi verksmiðjunnar heimilar framleiðslu á allt að 50.000 tonnum af kalki á ári og gildir til 1. nóvember 2022.

Bygging kalkþörungaverksmiðjunnar hófst haustið 2005. Framleiðsla hófst í september 2007. Afurðir verksmiðjunnar eru steinefnafóður og  jarðvegsbætiefni og er nær allt flutt út. Í byrjun var notað gas til þurrkunar en frá miðju ári 2010 hefur verið notað rafmagn. Söluskrifstofa fyrirtækisins er á Írlandi og fara afurðir verksmiðjunnar til viðskiptavina um allan heim. Starfsmenn verksmiðjunnar á Bíldudal eru 20 og auk þess nokkur afleidd störf.

Íslenska Kalkþörungafélagið ehf. hefur fengið vottun frá vottunarstofunni Túni um lífræna framleiðslu.  Haustið 2008 fékk félagið alþjóðlega fóðurvottun: FEMAS

Helstu umhverfiskröfur

Útblástur úr hreinsibúnaði skal leiddur út um reykháfa.  Hæð reykháfa, útblásturshraði og hitastig í reykháfum skal vera nægilega hátt til að tryggja að ákvæði um loftgæði, sbr. reglugerð nr. 251/2002  um brennisteinsdíoxíð,  köfnunarefnisdíoxíð og  köfnunarefnisoxíð, bensen, kolsýring, svifryk og blý í andrúmsloftinu og upplýsingar til almennings, séu uppfyllt.

Fráveitur skulu vera í samræmi við kröfur í reglugerð nr. 798/1999, um fráveitur og skólp, og ákvæði í lögum nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda, og þannig að ákvæði reglugerðar nr. 796/1999, um varnir gegn mengun vatns, sé uppfyllt.

Nánari upplýsingar um kröfur og eftirlit er að finna í starfsleyfinu sem gildir til 1. nóvember 2022.

 Eftirlitsskýrslur

Þvingunarúrræði

Grænt bókhald

Nánar
Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið