Malbikunarstöðin Höfði hf.
Upplýsingar um rekstur frá starfsleyfishafa
Malbikunarstöðin Höfði hf. er í eigu Borgarsjóðs Reykjavíkur og Aflvaka hf. Fyrirtækið hóf starfsemi 1. janúar 1997. Stjórn fyrirtækisins skipa 3 fulltrúar eigenda, kosnir á aðalfundi.
Fyrirtækið skiptist í fimm deildir: Hráefnadeild, Framleiðsludeild, Framkvæmdadeild, Rannsókna- og þróunardeild og Sölu- og markaðsdeild.
Hráefnadeild sér um framleiðslu á steinefnum í malbik og til sölu til annarra aðila.
Framleiðsludeild sér um framleiðslu á malbiki og blöndun á bindiefni fyrir klæðingar og bikfestun úti á landsbyggðinni. Framleiðsla stöðvanna er tölvustýrð.
Framkvæmdadeild sér um ýmsar framkvæmdir, sem fyrirtækið tekur að sér. Útlagning malbiks er stærsti og veigamesti þátturinn í starfsemi deildarinnar. Auk þess hefur deildin séð um söltun og snjómokstur á götum Reykjavíkur yfir veturinn. Rannsókna- og þróunardeild sér um allar hefðbundnar prófanir á steinefnum og malbiki, og sinnir auk þess ýmsum þróunarverkefnum sem snerta steinefni og malbik.
Sölu- og markaðsdeild sér um fjármál, innheimtu og sölu ýmissa efna til vegagerðar. Vigtanir tækja, einkum bíla, fyrir ýmsa aðila eru talsverðar.
Fyrirtækið einsetur sér að veita faglega og góða þjónustu þar sem gæði og umhverfissjónarmið eru í hávegum höfð. Rík áhersla er lögð á að afhenda viðskiptavininum þá vöru sem hann biður um á hverjum tíma.
Helstu umhverfiskröfur
Upplýsingar um kröfur og eftirlit er að finna í starfsleyfinu sem gildir til 1. febrúar 2015.




