Sementsverksmiðjan Akranesi

Upplýsingar um rekstur frá starfsleyfishafa

Sementsverksmiðjan hf er hlutafélag með lögheimili á Akranesi. Árið 1948 voru samþykkt heimildarlög á Alþingi um byggingu sementsverksmiðju og var henni valinn staður á Akranesi. Þann 14. júní 1958 var í fyrsta sinn kveikt undir ofninum og þar með hóf verksmiðjan framleiðslu. Sementsverksmiðjan hefur því framleitt íslenskt sement í yfir 50 ár.

Sementsverksmiðjan framleiðir Portlandsement, Kraftsement og Hraðsement. Helstu hráefni til sementsframleiðslu eru skeljasandur, líparít og basaltsandur, sem eru innlend hráefni, og gips sem er innflutt. Nokkrar tegundir íblöndunarefna eru notaðar og er helst að nefna kísilryk sem fengið er frá Elkem AS á Grundartanga. Verksmiðjan getur framleitt um 115 þúsund tonn af sementsgjalli og möguleg mölunarafköst eru um 180 þúsund tonn af sementi á ári. Búnaður verksmiðjunnar hefur verið mikið endurnýjaður og ýmis konar nútíma tækni tekin í notkun í framleiðsluferlum.

Mikil áhersla er lögð á gæði framleiðslunnar og gæðaeftirlit og starfrækt er gæðakerfi sem samræmist kröfum gæðastaðalsins ÍST EN ISO 9001:2000, en fyrirtækið fékk fyrst gæðavottun 1998. Umhverfisstjórnunarkerfi, sem sett var upp með hliðsjón af IST 14001, var bætt við gæðakerfið 2002. Íslenska sementið var fyrst íslenskra byggingavara til að fá evrópska samræmingarmerkið CE árið 2002 en það vottar að framleiðslan stenst kröfur evrópska sementsstaðalsins.

Helstu umhverfiskröfur

Útblástursloft frá gjallofni skal hreinsa í viðeigandi hreinsibúnaði. Styrkur efna í útblæstri skal vera undir eftirfarandi gildum umreiknað miðað við hitastig 273 K (0°C), þrýstingur 101,3 kPa, 10% súrefni, þurrt loft. Miðað er við dagleg meðalgildi.

 

Kadmíum (Cd) og þallíum (Tl) 0,05 mg/Nm3
 Nikkel (Ni), króm (Cr), arsen (As), kóbalt (Co), kopar (Cu), vanadíum (V), blý (Pb), mangan (Mn), antimon (Sb)  0,5 mg/Nm3
 Kvikasilfur (Hg)  0,05 mg/Nm3
 Saltsýra (HCl)  10 mg/Nm3
 Flússýra (HF)  1 mg/Nm3
 Brennisteinsdíoxíð (SO2)  240 mg/Nm3
 Köfnunarefnisoxíð (NOx)   800 mg/Nm3
 Díoxín og fúrön

 0,1 ng TEQ/Nm3

 Heildarryk  50 mg/Nm3
 Heildarryk við sambrennslu úrgangs  30 mg/Nm3

Nánari upplýsingar um kröfur og eftirlit eru að finna í starfsleyfinu se, gildir til 31. desember 2024.

Eftirlitsskýrslur

Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið