Hálsar

Hálsar í Djúpavogshreppi voru friðlýstir sem búsvæði tjarnaklukku árið 2011.  Markmið friðlýsingarinnar er að stuðla að varðveislu og viðhaldi náttúrulegs ástands tjarnanna á Hálsum og styrkja verndun eina þekkta búsvæðis tjarnaklukku hér á landi ásamt öðru lífríki svæðisins.

Ennfremur er það markmið friðlýsingarinnar að tryggja möguleika á rannsóknum á lífríki svæðisins með áherslu á og búsvæði tjarnaklukku sem hefur verið lítt raskað en rannsókna- og fræðslugildi svæðisins er mikið.

Í tjörnunum á Hálsum er að finna allar þekktar vatnaklukkur landsins, en á svæðinu er fjölbreytt og gróskumikið lífríki.

Við ákvörðun friðlýsinguna var höfð hliðsjón af samningnum um verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu (Bern 1979), sbr. Stjórnartíðindi C 17/1993, samningnum um líffræðilega fjölbreytni (Ríó de Janeiró 1992), sbr. Stjórnartíðindi C 3/1995, evrópska áætlun um verndun hryggleysingja sem unnin var á grundvelli Bernarsamningsins (Nature and environment No. 145) og 2010 markmið Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni.

Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið