Dverghamrar, Skaftárhreppi.
Dverghamrar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1987. Sérkennilegir og fagurformaðir stuðlabergshamrar. Ofaná stuðlunum er víða svokallað kubbaberg. Þegar sjávarborð lá hærra við ísaldarlok hefur hafaldan sett mark sitt á lögun hamranna.
Stærð náttúruvættisins er 2,14 ha.




