Dyrhólaey, Mýrdalshreppi

ÆðarfuglDyrhóley er 120 m hár móbergsstapi sem rís þverhnýptur úr hafi. Mjór bergrani tengir eyjuna við land og í honum er gatið eða dyrnar sem stapinn ber nafn sitt af. Dyrhólaey var friðlýst árið 1978 en þar er mikil náttúrufegurð og fuglalíf og eyjan því vinsæll viðkomustaður ferðamanna. Stærð friðlandsins er 147,2 ha.

Ráðgjafarnefnd Dyrhólaeyjar og Umhverfisstofnun vinna nú að gerð verndaráætlunar fyrir friðlandið. Lögð er áhersla á opið og gagnsætt ferli og hægt að nálgast allar upplýsingar á vef Umhverfisstofnunar: Dyrhólaey - verndaráætlun í vinnslu

Tengt efni

 

Dyrhólaey

Umsjón friðlandsins er í höndum Umhverfisstofnunar og Mýrdalshrepps sem gerðu með sér samning árið 2011 um umsjón og rekstur þess. Unnið er að því að bæta aðstöðu fyrir gesti með stígagerð og bættum merkingum og lagður hefur verið nýr vegur út á Lágey. Ráðgjafarnefnd starfar um málefni friðlandsins og er hún skipuð til fjögurra ára í senn.

Fulltrúar í ráðgjafarnefnd Dyrhólaeyjar frá 2011

  • Ólafur A. Jónsson - Umhverfisstofnun (formaður)
  • Eggert Sólberg Jónsson - tilnefndur af Ferðamálastofu
  • Gunnar Á Gunnarsson - tilnefndur af ábúendum í Dyrhólahverfi
  • Sigurður Elías Guðmundsson - tilnefndur af Mýrdalshreppi
  • Ólafía Jakobsdóttir - tilnefnd af Náttúruverndarsamtökum Suðurlands

DyrhólaeyUmhverfisstofnun hefur umsjón með friðlandinu Dyrhólaey. Á friðlýstum svæðum þarf að gæta að verndun samhliða því að tryggja almannarétt. Mörg svæði eru lokuð hluta úr ári til verndunar dýralífi, önnur eru lokuð allt árið vegna viðkvæmra náttúruminja, umferð um sum svæði er takmörkuð þannig að fólk þarf að tilkynna sig inn á svæði og enn önnur opin allt árið um kring. Umhverfisstofnun hefur heimild til að takmarka umferð inn á svæðið og hefur stofnunin ákveðið síðustu ár hvort og hversu lengi svæðið skuli lokað fyrir umferð almennings til verndunar fuglalífi.

Undanfarin ár hafa verið miklar deilur vegna Dyrhólaeyjar þar sem ólík sjónarmið eru uppi á svæðinu um hvort og hversu lengi loka eigi svæðinu. Þar takast á ýmsir hagsmunir. Í fyrra voru meðal annars unnin skemmdarverk á hliðum á svæðinu.

Umhverfisstofnun tekur ákvarðanir með hagsmuni umhverfis og almannarétt að leiðarljósi. Það er mikilvægt að fólk virði þær ákvarðanir sem teknar eru til verndar náttúru og dýralífi jafnt sem þeim sem tryggja almannarétt og umgengni um svæði.

Dyrhólaey er opin almenningi nær allt árið en umferð verður stýrt um friðlandið með eftirfarandi hætti á árinu 2012 til verndar fuglalífi:

  • Dyrhólaey verður lokuð frá 5. maí 2012 til og með 12. maí 2012. 
  • Á tímabilinu 13. maí 2012 til 25. júní 2012 verður opið inn á Lágey Dyrhóleyjar milli kl. 09.00 til 18.00 en Háey lokuð fyrir akandi umferð.  Umferð gangandi almennings er heimil um Lágey og Háey eftir merktum göngustígum milli kl. 09.00 til 18.00 á þeim tíma. Friðlandið er lokað á kvöldin og á nóttunni frá kl. 18:00 til kl. 09:00 á tímabilinu. 
  • Frá 25. júní er svæðið opið allan sólarhringinn.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar í heild.

Umhverfisstofnun vinnur nú að gerð verndaráætlunar fyrir Dyrhólaey og er starfrækt ráðgjafarnefnd í tengslum við þá vinnu.

Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið