Dynjandi í Arnarfirði

Dynjandi og aðrir fossar í Dynjandisá ásamt umhverfi þeirra var friðlýst sem náttúruvætti árið 1981. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda fossastigann í ánni sem hefur orðið til vegna lagskiptingar bergsins í hraunlög og lausari millilög.

Dynjandi er í botni Arnarfjarðar innan landamerkja Ísafjarðabæjar.  Mörk Náttúruvættisins eru frá odda Meðalness upp í fjallseggjar og með fjallsbrúnum umhverfis voginn og Dynjandisdal allt að mörkum jarðarinnar Dynjanda í Urðarhlíð og með þeim til sjávar.

Stærð náttúruvættisins er 644,9 ha.

Náttúruminjar

Dynjandi er í Dynjandisá sem á upptök sín á Dynjandisheiði í Eyjavatni og rennur til sjávar í Dynjandisvog. Sérstaða Dynjanda er hversu formfagur fossinn er þar sem hann steypist fram  af fjallsbrún í um 100 m falli eftir hörðu blágrýtislagi. Fossinn er um 30 m breiður efst og 60 m neðst.   Neðan Dynjanda eru 7 fossar, Hæstuhjallafoss (Úðafoss), Strompgljúfrafoss (Strompur), Göngumannafoss, Hrísvaðsfoss og Kvíslarfoss, en neðstir eru Hundafoss og Bæjarfoss (Sjóarfoss).
Gróðurfar á svæðinu einkennist af lyngbrekkum og graslendi. Mest af flatlendinu er gamalt tún og  graslendi, en brekkurnar  grónar grasi og lyngi neðst en mosa og lyngi ofar í bland við fjalldrapa. Í einstaka votlendisblettum vex m.a. klófífa og mýrarstör.  Á svæðinu finnast einnig sóldögg og þríhyrnuburkni sem eru sjaldgæfar plöntur á landsvísu.

Menningaminjar

Óvíða er vatnaniður meiri en við Dynjanda. Berast drunurnar langar leiðir og ber fossinn nafn með rentu. Í sóknarlýsingu Rafnseyrarkirkjusóknar 1839  er sagt að bærinn Dynjandi taki „nafn af stórum fjallfossi árinnar, sem rennur hjá bænum“. Er þá eflaust átt við að hann steypist ofan af fjallsbrún.
Bærinn Dynjandi stóð í nánd við ós árinnar þar sem sést í rústir, en síðustu ábúendur fluttu þaðan 1951. Dynjandi var fornfrægt  stórbýli  og bjuggu þar þekktir bændur og sveitahöfðingjar. Þekktastir eru feðgarnir Ebenezer Jónsson og Vagn Ebenezersson sem bjuggu á Dynjanda á 19. öld. Báðir þóttu þeir göldróttir og fóru af þeim ýmsar sögur. Ein sagan af Vagni segir að hann hafi fengið sendingu frá stúlku í Arnarfirði, sem taldi hann hafa svikið sig í ástum. Vakti hún upp nýdauða kerlingu og magnaði gegn honum. Snemma morguns kom kerling að Dynjanda og barði að dyrum. Vagn gekk út og gat fyrirkomið draugnum með særingum og galdraþulum í dýi einu skammt frá bænum. Kerlingardraugurinn hafði þó áður komið við í hesthúsinu og  drepið þrjú hross.
Ofan við túnið á Dynjanda, skammt frá ánni er lítil upphlaðin laug sem var með 25-30° heitu vatni. Hún var líklega notuð í fyrri tíð til þvotta eða sem setlaug.
Náttúruvættið er í Arnarfirði við þjóðveg 60 um 30 km norðan friðlandsins í Vatnsfirði. Við Dynjanda er bílastæði, salernisaðstaða og tjaldsvæði. Göngustígur liggur frá bílastæði, meðfram Dynjandisá að fossinum Dynjanda og tekur gangan um 15 mínútur.
Jarðvegur er grunnur  og laus í sér meðfram ánni sem gerir það að verkum að gróðurinn er mjög  viðkvæmur fyrir traðki.  Öllum er heimil för um svæðið enda sé gróðri hlíft og góðrar umgengni gætt.  
Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið