Hraunfossar, Borgarbyggð
Hraunfossar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1987. Hraunfossar eru fagrir lindárfossar sem falla hvítfyssandi undan Hallmundarhrauni niður í Hvítá. Barnafoss er skammt ofan við Hraunfossa í stórbrotnu umhverfi. Fossin er þekktur fyrir brýr og steinboga sem áin hefur markað í bergi.
Stærð náttúruvættisins er 36,1 ha.




