Svanurinn
Ágætis byrjun er verkefni sem Umhverfisstofnun stendur fyrir til að kynna Svaninn og hvetja foreldra til að nota umhverfismerki sem hjálpartæki við vöruval. Með því að velja umhverfisvottaðar vörur fram yfir aðrar tekur maður sjálfur stjórnina og velur í auknum mæli hvaða efni maður kemst í snertingu við.
Verkefnið Ágætis byrjun gengur út á að dreifa Svanspokum til nýbakaðra foreldra. Verkefnið er unnið að norskri fyrirmynd en þar hefur sambærilegt verkefni verið í gangi síðan 2005. Í pokunum er bæklingur sem fjallar um umhverfismerkið Svaninn og mikilvægi þess að velja umhverfisvottað fyrir ungabörn. Í pokanum eru einnig vöruprufur en tilgangurinn er ekki að kynna einstök vörumerki heldur að varpa ljósi á að Svanurinn hefur vottað breitt úrval af ungbarnavörum og því hafa foreldrar raunverulegt val um vöru sem er betri fyrir umhverfi og heilsu. Hvaða vörur eru í pokanum? Verkefninu er ætlað að ná til alls landsins og er miðað við að öll börn fædd á Íslandi á tímabilinu nóvember 2011 til nóvember 2012 fái pokann.
Sem foreldrar viljum við það allra besta fyrir börnin okkar. Við viljum að þau séu örugg og hamingjusöm og vonum að þau muni lifa góðu lífi. Sjaldan er eins mikilvægt að vanda valið og þegar maður velur vörur fyrir nýfædda krílið sitt. Ungabörn eru mun viðkvæmari fyrir skaðlegum efnum heldur en fullorðnir. Varasöm efni geta leynst í öllum vörum og þess vegna er mikilvægt að vera meðvitaður um áhætturnar og velja skynsamlega.
Þetta snýst ekki um að vera fullkominn….heldur að velja skynsamlega! Nýbakaðir foreldrar finna margir fyrir álagi því þeir vilja gera allt rétt. Sumum fallast jafnvel hendur því
þeim finnst erfitt að leggja mat á mismunandi vörur eða efnainnihald. Skilaboð Svansins eru: Ekki missa móðinn, það er hægt að taka upplýsta og skynsamlega ákvörðun þegar kemur að vöruvali. Hægt er að velja Svansvottaðar vörur í stórum og algengum vöruflokkum en með vali sínu eru foreldrar að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum og auka heilnæmi í umhverfi barnsins.
Bæklingurinn
Nánar um pokann
Spurningar og svör (FAQ)
Svanurinn auðveldar foreldrum að velja vöru og þjónustu sem standast ströngustu umhverfis-, heilsu– og gæðakröfur. Svanurinn vonar að verkefnið verði til þess að vekja athygli á mikilvægi neytendavals fyrir umhverfi og lýðheilsu.
Svanurinn er opinbert norrænt umhverfismerki. Strangar kröfur Svansins um lágmörkun umhverfisáhrifa tryggja að Svansmerkt vara er betri fyrir umhverfi og heilsu. Með því að velja Svansmerkta vöru og -þjónustu stuðlar þú að betra umhverfi og bættri heilsu fyrir þig og þína, án þess að fórna gæðum. Kröfur Svansins ná yfir alla helstu umhverfisþætti þjónustu eða framleiðslu vöru svo sem orku– og hráefnanotkun, losun mengandi eða hættulegra efna, umbúðanotkun, flutning og meðhöndlun úrgangs. Svanurinn gerir skýrar kröfur til Svansmerktrar vöru og má þar nefna að Svansmerkt dömubindi verða að innihalda lífrænt ræktaðan bómull, Svansmerkt garðhúsgögn er eingöngu smíðuð úr viði frá sjálfbærri skógrækt og gerðar eru strangar kröfur um lita– og efnameðhöndlun á Svansmerktum fatnaði. Það sama á við um þjónustuaðila en Svansmerkt hótel, ræstingarþjónustur eða veitingastaðir eru búin að lágmarka heildar umhverfisáhrif frá sinni starfssemi og innleiða orkusparnað, vistvæn innkaup og betri lausnir við úrgangsmeðhöndlun.
Öll framleiðsla og neysla hefur í för með sér einhver neikvæð umhverfisáhrif. Það má spyrja sig af hverju verið er að veita hjólbörðum Svansvottun því varla er framleiðsla eða notkun hjólbarða mjög umhverfisvæn? Þegar þú kaupir
þér Svansmerkta hjólbarða þá er Svansvottunin staðfesting á að þeir eru besta valið fyrir umhverfið og heilsuna. Framleiðsluferli þeirra hefur verið aðlagað að viðmiðum Svansins um hjólbarðaframleiðslu en þau taka til margra þátta eins og að hjólbarðarnir verða að hafa lítið viðnám til að draga úr eldsneytisnotkun og vera hljóðlátir og öruggir. Efnainnihald, framleiðsluaðferðir og líftími hjólbarðanna verða einnig að vera í samræmi við kröfur Svansins. Það eru til Svansskilyrði fyrir mjög margar vörur og jafnvel hægt að votta eldsneyti. Svansmerkt eldsneyti má ekki vera jarðefnaeldsneyti og þar að auki þarf að gera grein fyrir uppruna hráefnanna sem notuð eru í eldsneytið og framleiðsla þess má ekki vera of orkufrek.
Í dag eru til Svansskilyrði fyrir tæpa 70 mismunandi flokka vöru og þjónustu og yfir 6000 vörutegundir og þjónusta ber nú merki Svansins.
Svanurinn auðveldar neytendum að velja vöru sem eru öruggari en margar sambærilegar vörur á markaðnum. Svanurinn gerir strangar kröfur um efnainnihald og lágmörkun á notkun hættulegra efna við þjónustu og framleiðslu vöru. Má þar nefna að við framleiðslu á Svansmerktum hreinlætis– og snyrtivörum má ekki nota ofnæmisvaldandi ilmefni og engin þekkt krabbameinsvaldandi og hormónatruflandi efni.
Svansmerktar vörur eru sjálfsagt val fyrir foreldra því sett eru sérstaklega ströng viðmið til vöru sem er ætluð börnum svo sem bleyjur, leikföng, fatnað og hreinlætisvörur. Börn eru viðkvæmari fyrir áhrifum ýmissa óæskilegra efna sem notuð eru við framleiðslu og því er notkun þeirra lágmörkuð. Gerðar eru mjög strangar kröfur um hráefna í Svansmerktum bleyjum, ekki má nota krabbameinsvaldandi og hormónatruflandi eldvarnarefni á leikföng, fatnaður skal vera úr lífrænt ræktuðum eða sambærilegum trefjum og Svansmerkt sólarvörn, tannkrem og sápa ætluð börnum má ekki innihalda ilmefni. Svansmerktar vörur og þjónusta eru því með þeim öruggustu í sínum vöruflokki.
Svanurinn gerir kröfu um virkni og gæði vottaðrar vöru eða þjónustu. Til að fá Svansmerkið þarf virkni að vera jafn góð eða betri en hjá annarri sambærilegri vöru eða þjónustu. Þannig þarf til að mynda Svansmerkt þvottaefni að þvo hreint við lágt hitastig, húsgögn verða að þola strangar prófanir og kröfur eru gerðar um gæði prenthylkja.
Mikil áhersla er lögð á endingu og þol vörunnar. Sumar margnota vörur líkt og hleðslurafhlöður og örtrefjaklútar eru klárlega betri fyrir umhverfið en sambærilegar einnota vörur en aðeins að því gefnu að ending þeirra sé góð. Því er gerð mikil krafa um gæði Svansmerktra hleðslurafhlaðna og örtrefjaklúta og ítarlegra prófana krafist.
Á síðustu áratugum hefur vöruúrval og framleiðsluhraði aukist í vestrænum samfélögum og virðist þetta stundum skila sér í skemmri endingartíma vörunnar. Svanurinn vill sporna við þeirri þróun. Gæði eru ekki látin víkja fyrir kröfum um umhverfisáhrif og heilnæmi. Þvert á móti er lögð mikil áhersla á að Svansvottuð vara eða þjónusta standist samskonar gæðaprófanir og gerðar eru til svipaðrar vöru og þjónustu. Þetta skilar sér beint í auknum gæðum og betri vöru fyrir neytendur.
Til þess að vara eða þjónusta geti hlotið Svansvottun verður Norræna Umhverfismerkjanefndin að hafa mótað kröfur fyrir viðkomandi vöru- eða þjónustuflokk. Þegar tekin er ákvörðun um hvort þróa eigi ný skilyrði fyrir Svaninn er tekið mið af því hversu umfangsmikil umhverfisáhrif hljótast af umræddri vöru eða þjónustu frá vöggu til grafar, hvaða möguleikar eru á því að draga úr umhverfisáhrifum og hvort Svansmerkingin sjálf geti haft jákvæð áhrif á val neytenda og þróun innan vöru– eða þjónustuflokksins til langs tíma.
Teymi óháðra sérfræðinga mótar skilyrði Svansins fyrir hvern vöru– eða þjónustuflokk fyrir sig. Áður en ákvörðun um skilyrðin er tekin er auglýst eftir athugasemdum frá atvinnulífinu, umhverfisverndarsamtökum og yfirvöldum í opnu umsagnar– og samráðsferli. Eftirlitsaðilar Svansins fylgjast með því að kröfum sé framfylgt og er það gert með heimsóknum til leyfishafa, prufutökum og öðrum leiðum er þykja nauðsynlegar hverju sinni. Hert er á kröfunum með á þriggja til fjögurra ára fresti svo Svansmerktar vörur og þjónusta eru í stöðugri þróun.
Áreiðanleiki Svansins felst ekki síst í því að Svanurinn gerir strangar kröfur sem allar vörur og þjónusta innan sama geira þurfa að uppfylla til að hljóta leyfi til að nota merkið. Svansmerkið er því skilaboð til neytenda um að traust úttektarferli hafið farið fram, að varan eða þjónustan standist kröfur þróaðar af óháðum sérfræðingum og sé því betri fyrir umhverfi og heilsu.
Svanurinn er ekki rekinn í hagsmuna- eða hagnaðarskyni. Rekstur Svansins er að hluta fjármagnaður með opinberum fjárframlögum og að hluta með umsóknar– og árgjöldum. Svaninum er stjórnað af sameiginlegri nefnd; Norrænu Umhverfismerkisnefndinni (NMN, Nordisk Miljömärkningsnämd). Nefndin mótar sameiginlega stefnu Svansins og ákveður fyrir hvaða vöruflokka og þjónustu skuli útbúa vottunarskilyrði. Í hverju landi er svo umhverfismerkisráð sem sér um stefnumótun í samræmi við norræna stefnu og þá stofnun sem hefur umsjón með daglegum rekstri Svansins.
Á Íslandi sitja í umhverfismerkisráði fulltrúar Umhverfisstofnunar, Samtaka verslunar og þjónustu, Landverndar, Nýsköpunarmiðstöðvar, Samtaka iðnaðarins, Staðlaráðs Íslands, Samtaka ferðaþjónustu og Neytendasamtakanna. Fulltrúi Umhverfisstofnunar er formaður ráðsins.
Umhverfisstofnun hefur umsjón með daglegum rekstri Svansins. Starfsmenn stofnunarinnar sjá um málefni Svansins á Íslandi, m.a. norrænt samstarf, ráðgjöf og aðstoð við íslensk fyrirtæki sem sækja um Svaninn, vottun og leyfisveitingu, kynningu á Svaninum ásamt skrásetningu á erlendum Svansmerktum vörum.
Það er markmið Umhverfisstofnunar að umhverfismerkingar muni í stórauknum mæli leiða innkaup almennings og fyrirtækja. Umhverfisstofnun vinnur að því að efla starfsemi Svansins á Íslandi, auka verulega hlutfall Svansmerktrar vöru og þjónustu á markaði og efla áhuga almennings og fyrirtækja á Svaninum og öðrum umhverfismerkingum.
Kröfur Svansins eru strangar og Svansmerkið er þannig trygging fyrir því að um sé að ræða vandaða vöru eða þjónustu. Þú getur treyst því.
Ársskýrsla Svansins á norðurlöndum
- Prentsmiðjan hjá Guðjón Ó - frá 2000
- Farfuglaheimilin í Laugardal - frá 2004
- Undri – iðnaðarhreinsir - frá 2006
- Sólarræsting - frá 2007
- ISS – ræstingar - frá 2009
- Prentsmiðjan Oddi - frá 2009
- Farfuglaheimilin Vesturgötu - frá 2010
- Kaffihús kaffitárs - frá 2010
- Hreint ehf. – ræstingar - frá 2010
- Prentsmiðja Svansprent - frá 2010
- Ísafoldarprentsmiðja - frá 2010
- Nostra – ræstingar - frá 2010
- AÞ-þrif –ræstingar - frá 2010
- Háskólaprent - frá 2010
- Hótel Rauðaskriða - frá 2011
- Hótel Eldhestar – frá 2011
- Prentmet ehf. - prentsmiðjan Reykjavík - frá 2011




