29. mars 2011
Staðfestingargjald vegna hreindýraveiðileyfa
Síðasti mögulegi greiðsludagur staðfestingargjalds fyrir hreindýraveiðileyfi er fimmtudagurinn
31. mars. Ekki er hægt að greiða 1. apríl. Ef greiðsla berst ekki fyrir
tilskilinn tíma hefur veiðimaður afsalað sér úthlutuðu leyfi og því verður
úthlutað til næsta manns í biðröð.
Alltaf er eitthvað um að menn fái ekki útsenda greiðsluseðla. Hægt er að greiða staðfestingargjald beint inn á reikning eftir neðangreindum upplýsingum ef menn finna ekki greiðsluseðil eða kröfuna í heimabanka.
- Reikningsnúmer: 305-13-300515
- Kennitala móttakanda: 7010022880
- Skýring greiðslu: Kennitala leyfishafa
Upphæð staðfestingargjalds eftir svæðum og kyni eru sem hér segir:
- Tarfur á svæði 2: kr 33.750
- kýr á svæði 2: kr. 20.000
- Tarfur á svæðum 3-9: kr. 25.000
- kýr á svæðum 3-9: kr. 13.750




