27.10.2011 13:22
Hreindýrasúpa að hætti hússins
Hráefni
1/2 kg. hreindýrahakk
eitthvað af sveppum ( ekki verra ef það eru lerkisveppir )
1/2 - 1 púrrulaukur
2-3 gulrætur
1 sellerístöngull
1 rauð paprika
mér finnst líka gott að hafa 1/2 rauðan pipar.
villibráðasoð ( svona slurkur )
1/2 lítri rjómi ( má vera matreiðslurjómi )
salt
pipar
2 rosmarinstilkar
Leiðbeiningar
- Steikja kjötið og krydda
- Steikja grænmeti
- Setja allt saman í pott og sjóða bara.
- Bragðbæta með gráðosti og 1 epli.




