NESIS
NESIS - Evrópskt tengslanet umhverfisstofnana á sviði upplýsingatækni
Ísland tekur þátt í Evrópsku tengslaneti umhverfisstofnana á sviði upplýsingatækni sem stutt er af áætlun Evrópusambandsins á sviði upplýsingatækni (ICT-PSP). Markmiðið er að stuðla að notkun upplýsingatækni til þess að takast á við vandamál sem tengjast vöktun og meðferð umhverfisupplýsinga. Tengslanetið er byggt upp frá landstenglaneti Umhverfisstofnunar Evrópu, en að baki því neti eru skráðir níu hundruð sérfræðingar á meira en þrjú hundruð stofnunum á sviði umhverfismála í 38 Evrópuríkjum. Beinir þátttakendur í starfi verkefnisins eru frá 14 Evrópuríkjum, flestir þeirra landstenglar síns lands. Aukin samvinna stofnana er til þess fallin að stuðla að aukinni samræmingu í vöktun og við framsetningu umhverfisupplýsinga. Tengslanetið mun leggja vörður til þess að tryggja samfellu við innleiðingu á samþættu upplýsingakerfi fyrir Evrópu (SEIS) og gera tillögur að góðu verklagi. Fyrsti hluti verkefnisins, hvað Ísland varðar, var að taka saman skýrslu yfir stöðu mála hér á landi, gera grein fyrir innlendri tæknilausn (náttúruvefsjáin) og kynna niðurstöðurnar á ráðstefnu í tengslum við fund tengslanetsins. Framlag Íslands, skýrslur og fyrirlestra, má nálgast á heimasíðu verkefnisins. Næstu skref eru að halda ráðstefnu innanlands með hagsmunaaðilum til þess að uppfæra stöðuskýrsluna og til að kynna niðurstöður verkefnisins hér á landi en eins og áður segir er megin tilgangurinn að stuðal að aukinni notkun upplýsingatækni á sviði umhverfismála.

