Hollusta og Öryggi
Hollustuvernd
Svið umhverfisgæða
Umhverfisstofnun hefur það hlutverk samkvæmt lögum Nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir að samræma heilbrigðiseftirlit á landinu öllu, hafa nána samvinnu við heilbrigðisnefndir og veita ráðgjöf og þjónustu varðandi heilbrigðiseftirlit.
Hollustuhættir fjalla um heilsusamlegt umhverfi, aðbúnað og öryggi innanhúss hjá stofnunum og fyrirtækjum, sem almenningur sækir þjónustu til, einnig um öryggi t.d. á leiksvæðum barna og á sund og baðstöðum og um hreinlæti á lóðum og opnum svæðum.
Stofnunin gefur út í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir þá starfssemi sem fellur undir reglugerð nr. 941/2002 um hollustuhætti. Einnig veitir stofnunin fræðslu og leiðbeiningar um heilbrigðiseftirlit og framkvæmd þess.
Lög og reglugerðir sem Umhverfisstofnun kemur að varðandi hollustuhætti.
LÖG:
- Lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir
- Lög nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald
- Lög nr. 6/2002 um tóbaksvarnir
REGLUGERÐIR:
- Reglugerð nr. 941/2002 um hollustuhætti
- Reglugerð nr. 674/2005 um breytingu á reglugerð nr. 941/2002, um hollustuhætti
- Reglugerð nr. 242/2007 um breytingu á reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002.
- Reglugerð nr. 607/2005 um breytingu á reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða
- Reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim (með síðari breytingum)
- Reglugerð nr. 236/2003 um viðvörunarmerkingar á tóbaki
- Reglugerð nr. 177/1999 um smásölu og veitingar áfengis
- Reglugerð nr. 457/1998 um hollustuhætti á sund og baðstöðum
- Reglugerð nr. 585/2007 um veitinga og gististaði
- Reglugerð nr. 325/2007 um smásölu tóbaks
- Reglugerð nr. 326/2007 um takmarkanir á tóbaksreykingum
Skráningarform 2006 fyrir heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga
Hægrismellið með músinni og veljið "save target as.." til að vista skjölin á tölvuna ykkar.

