Efni í umhverfi barna
Efni og efnavörur í umhverfi barna
Ert þú áhyggjulaus?
Margir hafa áhyggjur af efnum í daglegu umhverfi okkar og er það skiljanlegt. Þúsundir efna eru í notkun og um mörg þeirra er lítið eða ekkert vitað, jafnvel fagfólk getur verið ósammála um hvort ástæða sé til að óttast þau. Fjölmiðlar birta okkur fréttir af áður óþekktum skaðlegum áhrifum efna á heilsu og umhverfi. Þótt upplýsingarnar séu ekki alltaf hárréttar, skapa þær umræðu og beina athygli að vandamálinu. Ef við höfum ekki yfirsýn yfir vandamálið getum við ekki varið okkur og börn okkar fyrir hættunni.
Þótt við vitum ekki allt, vitum við nóg til að geta sett okkur varúðarreglur
Vörur sem eru skaðlegar heilsu og umhverfi koma eftir ýmsum leiðum í híbýli okkar, t.d. þegar við kaupum málningu, skordýraeitur og þvottaefni, allt efni sem við vitum að geta verið skaðleg, eða þegar við kaupum hluti sem framleiddir eru úr efnum eða innihalda efni sem geta gufað upp eða lekið út í umhverfið. Dæmi um slíka hluti eru fatnaður og leikföng.
Mestri slysahættu valda efni sem hægt er að kaupa á flöskum og brúsum því óvitar geta drukkið þau eða gleypt.
Öll efni hættuleg heilsu manna eiga að vera merkt með varnaðarmerki á appelsínurauðum grunni.
|
|
![]() |
![]() |
|
|
Ekki er hætta á bráðri eitrun af plastleikföngum eða öðrum plasthlutum sem við kaupum, en það er ekki þar með sagt að þau séu hættulaus, því ekki er útilokað að með tímanum gefi plastefni frá sér dálítið af hættulegum efnum.
Frekari upplýsingar
Heilsugæslur og apótek
Spyrjið starfsfólk á þessum stöðum ef ykkur vantar upplýsingar um notkun og meðferð lyfja og eiturefna og annað er varðar heilsu. Á þessum stöðum liggja frammi bæklingar um margt er varðar heilsu og réttindi fólks. Lista yfir eitraðar plöntur er að finna á vefsíðum Lýðheilsustöðvar www.lydheilsustod.is.
Upplýsingsmiðstöð um eitranir.
Upplýsingamiðstöð um eitranir er opin allan sólarhringinn og þar gefur sérfræðingur ráð um hvað eigi að gera ef einhver hefur drukkið eða borðað hættulega vökva, lyf og þ.u.l.. Því betri upplýsingar sem hægt er að gefa um það sem gerst hefur, því betri hjálp fæst. Ef vitað er hvað var drukkið eða borðað er mikilvægt að hafa umbúðirnar af efninu, hvort sem um er að ræða hreinsiefnabrúsa eða lyfjaglas, við höndina þegar hringt er í upplýsingamiðstöðina.
Símanúmer Upplýsingamiðstöðvar um eitranir er :543 2222
Upplýsingar um matvöru, hreinlætisvörur, snyrtivörur, hættuleg efni o.fl.
Umhverfisstofnun hefur yfirumsjón með þessum málaflokkum og fylgist með að þessar vörur valdi ekki heilsutjóni séu þær notaðar á réttan hátt. Ef í ljós kemur að matvara eða hreinlætisvara valdi heilsutjóni er hún bönnuð. Veffang www.ust.is. Eftirlit með þessum matvælum er í höndum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaganna.
Leikföng
Neytendastofa hefur eftirlit með því að ný leikföng uppfylli kröfur um markaðssetningu leikfanga www.neytendastofa.is







