Frétt

05.07.2011 13:42

Spendýrin skoðuð


Um helgina stendur Þjóðgarðurinn fyrir tveimur ferðum þar sem lögð verður áhersla á að sjá og fylgjast með villtum spendýrum úti í náttúrunni. Laugardaginn 9. júlí verður gengið frá Búðakirkju og í Selavík þar sem tugir sela halda sig gjarnan í stórbrotnu umhverfi. Lagt verður af stað kl. 13 og tekur ferðin um fjóra tíma. Á sunnudeginum 10. júlí verður síðan farið að greni og vonandi láta íbúar þess sjá sig. Hittast á við gatnamótin út á Öndverðarnes kl. 14 og aka þaðan í átt að greninu. Í þá ferð er gott að koma dökkklæddur og hafa sjónauka meðferðis en ferðin tekur um tvo klukkutíma. Sæmundur Kristjánsson verður leiðsögumaður í báðum ferðunum og mun hann eflaust segja frá einhverju skemmtilegu í bland við dýraskoðunina. Barnastund og ganga um Djúpalónssand og Dritvík verða einnig á sínum stað um helgina. Ekkert gjald er í ferðirnar. Fylgist með viðburðadagatali á heimasvæði Snæfellsjökuls á vef Umhverfisstofnunar.
Til baka
Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið