Frétt

11.08.2011 13:04

Á slóðum Bárðar í Tröllakirkju


Sunnudaginn 14. ágúst kl. 11-16. Síðasta gönguferð sumarsins með Þjóðgarðinum á afmælisári.

Gengið verður eftir stórbrotinni strönd frá Hólavogi suður á Djúpalónssand um Dritvík. Í Dritvík verður þess freistað að fara í Tröllakirkju en í hana er eingöngu hægt að komast á stórstraumsfjöru líkt og verður þennan dag.
Draugar, tröll og forynjur verða í brennidepli í göngunni en Tröllakirkja var bænastaður Bárðar Snæfellsáss. Ótal aðrar sagnir tengjast svæðinu sem farið verður um. 

Sæmundur Kristjánsson leiðir ferðina. Hist við afleggjarann sem merktur er Hrafnabjörg/Hólavogur.

Munið eftir góðum skóm og nesti. 

Allir velkomnir

Nánari upplýsingar í síma 436 6888.

Til baka
Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið