19.08.2011 10:52
Fuglalíf

Álka
Ellen Magnúsdóttir líffræðingur flytur fyrirlestur um fugla og fuglalífið í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Fuglaskoðun á æ meiri vinsældum að fagna og fjöldi fólks hefur gaman af að fylgjast með fuglalífinu. Hvaða fugla getum við helst átt von á að sjá á Öndverðarnesi, í Beruvík eða á Svalþúfu? Fyrirlestur verður haldinn í Átthagastofunni í Ólafsvík, þriðjudaginn 23. ágúst kl. 19:30.




