Gæðastefna
Stefna Umhverfisstofnunar í gæðamálum er að veita úrvals þjónustu og beita heildstæðri nálgun í öllun sínu starfi.
Rík áhersla er lögð á ábyrga og vandaða ákvarðanatöku
og að uppfylla kröfur og væntingar viðskiptavina stofnunarinnar. Unnið
verði eftir skýrum og skilvirkum ferlum sem hafi einfalt viðmót.
Stefnt er að auknu samstarfi við önnur stjórnvöld í þágu slíkrar
einföldunar og til að tryggja gæði þjónustunnar.
Umhverfisstofnun byggir starfsemi sína á faglegum styrk. Tekið er á málefnum sem berast af fjölbreyttri og víðtækri þekkingu.
Áhersla er lögð á að stofnunin njóti trausts.
Umhverfisstofnun vinnur að stöðugum umbótum á starfsemi sinni og stefnir að því að vera leiðandi í gæðamálum.
Umhverfisstofnun mun vinna samkvæmt gæða- og umhverfisstjórnunarkerfi sem uppfyllir kröfur ISO 9001 og ISO 14001.




