Afkoma Vatnajökuls

DPSIR-ahrif

Afkoma Vatnajökuls

22.1.2007

Umhverfisvísinn sýnir árlega afkomu Vatnajökuls, svo og heildarafkomu jökulsins, þ.e. breytingu á afkomu í heild frá því þessar afkomumælingar hófust árið 1992 til ársins 2005. Með afkomu er átt við aukningu eða minnkun á massa jökulsins.

Afkoma er ákvörðuð með því að mæla breytingar í þykkt og þéttleika (massa) jökulsins á völdum stöðum vor og haust. Niðurstöðurnar eru tengdar veðurfræðilegum aðstæðum (hita og úrkomu) til skamms tíma og sveiflum í loftslagi til lengri tíma.

Afkoma_vatnajokuls

Jöklar eru mjög næmir fyrir breytingum á hitastigi. Hlýnun andrúmsloftsins af völdum gróðurhúsalofttegunda ætti þess vegna fljótlega að koma fram í umfangi og stöðu jökla. Afkoman er reiknuð yfir í vatnssúlu jafndreift yfir allt yfirborð jökulsins. Línuritið sýnir stöðuga minnkun snjómassans eftir miðjan síðasta áratug.  Þróun afkomu annarra jökla stefnir í sömu átt.

Heimild: Raunvísindastofnun, Helgi Björnsson og Finnur Pálsson

 



 


Útlit síðu:

Leit





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.