Gistinætur allir
Gistinætur í þjóðgörðunum Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum
Umhverfisvísir þessi tekur til fjölda skráðra gistinátta í Skaftafellsþjóðgarði og Þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum. Er honum ætlað að lýsa fjölda ferðamanna sem sækja þjóðgarðana heim og hafa þar lengri viðdvöl en einn dag.
Markmið umhverfisvísisins er að fylgjast með fjölda ferðamanna og þjóðernis þeirra, í þeim tilgangi að meta þörf fyrir þjónustu og vinnuafl tengt henni.
Myndin sýnir samanburð á fjölda skráðra gistinátta á tjaldsvæðum þjóðgarðanna í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum frá því skráning þeirra hófst til dagsins í dag.
Heimildir:1974-1983 Gistináttaskýrslur Náttúruverndarráðs, 1984-2005 Gistináttaskýrslur Hagstofunnar.
Tölur vantar fyrir árin 1976, 1977 og 2000 í Skaftafelli
Tölur vantar fyrir árin 1974-1977 í Ásbyrgi og ágústmánuð árið 2001.
Tölur vantar fyrir árin 1974, 1975 og 1977 í Vesturdal.

