Stök frétt

Þann 16. febrúar sl. gaf Umhverfisstofnun út starfsleyfi fyrir móttökustöð Ísafjarðarbæjar í Engidal, Ísafjarðarbæ. Tillaga að starfsleyfinu var auglýst á tímabilinu 24. nóvember 2011 - 20. janúar 2012 og barst Umhverfisstofnun ein athugasemd sem tekið var tillit til við útgáfu leyfisins. Samkvæmt hinu nýja starfsleyfi er Ísafjarðarbæ heimilt að taka á móti allt að 3.000 tonnum af úrgangi á ári til meðhöndlunar, þ.e. flokkunar, umhleðslu, pökkunar og geymslu, og gildir leyfið til næstu sextán ára.