Stök frétt

Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið á Hornströndum hefur frá og með deginum í dag formlega tekið gildi. Markmiðið með áætluninni er að leggja fram stefnu um verndun og viðhalda verndargildi í sem bestri sátt. Áætlunin var unnin af samstarfshópi landeigenda, skipulagsyfirvalda og Umhverfisstofnunar sem hefur umsjón með friðlandinu. Í stjórnunar- og verndaráætluninni eru settar sérstakar reglur um umferð manna og dvöl eins og lesa má nánar um hér.

Hornstrandir voru friðlýstar árið 1975. Eitt aðaleinkenni Hornstranda er hve afskekkt svæðið er og lítt mótað af umsvifum og ágangi manna. Innan svæðisins eru alþjóðlega mikilvæg fuglabjörg, einstakt gróðurfar og menningarminjar sem standa sem minnisvarðar um liðinn tíðaranda og forna búsetuhætti. Eitt af helstu einkennum er þéttleiki heimskautarefsins en Hornstrandir eru eitt mikilvægasta búsvæði refa í Evrópu.

Á myndinni fagna forstjóri Umhverfisstofnunar, Kristín Linda Árnadóttir, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Kristín Ósk Jónasdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, verndunaráfanga Hornstranda fyrr í dag.