Stök frétt

Eins og mörgum er kunnugt hefur Fréttatíminn birt frétt með myndum af alvarlegum náttúruspjöllum sem unnin hafa verið í móbergsklöpp í Helgafelli við Hafnarfjörð. Nöfn og fangamerki einstaklinga höfðu verið krotuð í mjúkt bergið og er augljóst að sum spjöllin hafa verið unnin mjög nýlega, jafnvel á allra síðustu dögum.

Svona áletrarnir eru skýrt brot á náttúruverndarlögum og gríðarleg vanvirðing gagnvart náttúru landsins, enda skilja brotin eftir sig skemmdir sem getur tekið veður og vinda tugi eða hundruð ára að afmá. Það sem verra er, svona athæfi geta virkað sem hvatning fyrir aðra til að gera slíkt hið sama. Umhverfisstofnun hefur tekið náttúruspjöllin við Helgafell til meðferðar og hefur tilkynnt brotin til lögreglu. Þá lýsir Umhverfisstofnun áhyggjum af utanvegaakstri og óvirðingu við náttúru landsins sem fjallað hefur verið um síðustu vikur.

Náttúruspjöll eru lögbrot sem sæta viðurlögum og við hvetjum ferðalanga til að halda vöku sinni og tilkynna brot. Hjálpumst að við að halda náttúru okkar óspilltri. Ef það er ekki gestabók á fjallstindinum sem þú toppaðir, vinsamlegast slepptu því að rita nafnið þitt.