Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur borist umsókn frá Háskóla Íslands um leyfi til afmarkaðrar notkunar erfðabreyttra ávaxtaflugna (Drosophila melanogaster) í rannsóknarstofum í Öskju við Sturlugötu 7 og Læknagarði við Vatnsmýrarveg 16 í Reykjavík.Starfsemin sem hér um ræðir fellur undir lög um erfðabreyttar lífverur nr. 18/1996 og reglugerð nr. 276/2002 um afmarkaða notkun erfðabreyttra lífvera, annarra en örvera.

Í umsókn kemur fram að ráðgert er að nota erfðabreyttu flugurnar við grunnrannsóknir á hlutverkum sameinda í fjölfrumungum og við kennslu í lífvísindum.

Ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur verður tilkynnt um umsóknina en  Háskóli Íslands hefur leyfi til afmarkaðrar notkunar erfðabreyttra ávaxtaflugna í sömu aðstöðu sem gildir til 21. október 2020 og er því um að ræða áframhaldandi starfsemi.

Umhverfisstofnun mun auglýsa ákvörðun sína um útgáfu leyfis síðar.