Stök frétt

Mynd tekin af vef Sveitarfélagsins Skagafjörður
Umhverfisstofnun hefur borist umsókn um starfsleyfi frá Sveitarfélaginu Skagafirði vegna urðunar úrgangs á Skarðsmóum við Sauðárkrók.

Unnið er úr umsókninni og að gerð starfsleyfistillögu.

Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.