Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Hið Norðlenzka Styrjufjelag ehf. Um er að ræða landeldi á styrju á Ólafsfirði, Fjallabyggð. Hámark lífmassa á hverjum tíma má ekki fara yfir 20 tonn vegna matfiskeldis. Ef stöðin verður notuð til seiðaeldis þá má hámarkslífmassi ekki fara yfir 1 tonn eða 10.000 seiði á hverjum tíma. Starfsemin er skráningaskyld hjá Matvælastofnun.

Að mati Umhverfisstofnunar eru helstu áhrif vegna eldisins losun næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í sjó. Fráveitunni er veitt í fráveitukerfi sveitarfélagsins áður en hún fer í viðtaka. Hægt er að endurskoða fyrirkomulag fráveitu frá eldinu og gera auknar kröfur bendi mælingar til að hreinsun sé ábótavant samkvæmt mælingum.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202112-227, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 28. mars 2022. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl
Tillaga að starfsleyfi - Hið Norðlenzka Styrjufjelag ehf.