Bisfenól A (BPA) er eitt af mikilvægustu byggingarefnunum í hörðu plasti af pólýkarbónat gerð og finnst einnig í hinum ýmsu vörutegundum úr epoxý og pappír til hitaprentunar (t.a.m. kassakvittunum).
Af hverju er það varasamt?
Samkvæmt hættuflokkun á bisfenóli A veldur efnið alvarlegum augnskaða, er ertandi og ofnæmisvaldandi við snertingu við húð og getur haft skaðleg áhrif á frjósemi. Deilt hefur verið um áhrif Bisfenól A í neytendavörum vegna mismunandi túlkunar á niðurstöðum vísindarannsókna. Bisfenól A er bannað í barnapelum á Íslandi og í Danmörku og hafa önnur lönd slíkt til athugunar.
Í hvað er efnið notað?
Ákveðnar reglur gilda um Bisfenól A í vörum sem komast í snertingu við matvæli eins og plastpoka þar sem ákveðið magn af efnunum má leka úr vörunni. Einnig hafa verið settar reglur um hámarksmagn efnisins í hitaprentanlegum pappír.