Undanfarin ár hafa vísindamenn og heilbrigðisstarfsfólk bent á hættu sem stafar af efnum sem valda svokölluðum hormónatruflandi áhrifum (endocrine distrupting effects). Ekki er um eina ákveðna uppsprettu að ræða, heldur eiga efni þessi uppruna sinn í fjölmörgum vörum sem venjuleg heimili nota dagsdaglega. Þessi efni eru gjarnan í mjög lágum styrk í ýmsum plastvörum, s.s. ílátum undir matvæli, ungbarnaleikföngum, snyrtivörum og plöntuverndarvörum. Dæmi um þessi efni eru plastmýkingaefni eins og PCB (polychlorinated biphenyls), BPA (bisfenol A), PBDE (polybrominated diphenyl ethers) og fjölda þalata sem eru mýkingaefni og t.d. notuð í leikföng og mjúkar plastumbúðir. Þau finnast líka í vörum sem auglýstar eru BPA lausar. Það sem þessi efni eiga sameiginlegt er að þau herma eftir kvenhormóninu estrógen og trufla þar af leiðandi öll efnaskipti þar sem það kemur við sögu, allt frá getnaði til fæðingar en líka síðar á ævinni. Vísindamenn telja mikilvægt að setja öll hormónatruflandi efni í samhengi við önnur, alls ekki sé nóg að tilnefna leyfilegt magn hvers efnis fyrir sig, heldur þurfi að meta þau saman í uppsöfnuðu magni, hvort sem er í fæðunni eða umhverfinu.
Hvaða áhrif hafa hormónatruflandi efni á fóstur og börn?
Hormónatruflandi efni hafa áhrif á fjölda og gæði sæðisfrumna, þroska karlkynsfóstra í móðurkviði, valda fæðingargalla á kynfærum sveinbarna, trufla kynþroska drengja, kalla fram kvenleg einkenni drengja og karllæg einkenni hjá stúlkubörnum. Sami efnastyrkur hefur ekki sömu áhrif á vaxandi fóstur og mæður, og því eru þessi efni sérstaklega hættuleg fyrir ófrískar konur. Önnur áhrif hormónatruflandi efna eru minni frjósemi, krabbamein í kynkirtlum, efnaskiptakvillar sem valda offitu og sykursýki og bæling ónæmiskerfisins.
Aukin tíðni fæðingagalla á kynfærum sveinbarna þar sem þvagrás er of stutt og þvagrásaropið er á röngum stað neðanvert á getnaðarlimnum, ásamt því að bæði eistun ganga ekki niður þegar sveinbarnið fæðist er vaxandi heilsufarsvandamál. Stúlkubörn verða sömuleiðis fyrr kynþroska. .
Nýbakaðar mæður með börn á brjósti og ungbörn eru sérlega viðkvæm fyrir efnum í umhverfinu og ættu að fylgja eftirfarandi ráðum til að forðast þau efni sem valda truflun á hormónajafnvæginu og efni sem geta valdið ofnæmi:
Hormónatruflandi efni hafa víðtæk áhrif í umhverfinu og á öll spendýr, en mest er athyglin á skaðsemi þeirra fyrir ófrískar konur, ungbörn og á sæðisframleiðslu karla, kyngetu og krabbameina í eistum, blöðruhálskirtli og brjóstum.