Hér má finna áhugaverða tölfræði um nokkra úrgangsflokka og hvernig gengur að uppfylla markmið sem hafa verið sett. Öll hlutföll eru hlutföll þess magns sem fór í viðkomandi ráðstöfun (endurnýting/endurvinnsla) af heildarmagni sem meðhöndlað var/féll til í viðkomandi úrgangsflokki.
Tenglar á gagnaskrár eru neðst.
Endurnýting
Úrgangur er nýttur með þeim hætti að aðalútkoman er sú að hann verður til gagns. Úrgangurinn er þannig notaður í stað efniviðar sem annars hefði verið notaður. Vinnsla á orku eða eldsneyti úr úrgangi fellur hér undir.
Endurvinnsla
Úrgangur er unninn í vörur, efnivið eða efni, hvort sem er til notkunar í upphaflegum tilgangi eða í öðrum tilgangi. Endurvinnsla telst til endurnýtingar.
Gagnaskrár
Þessar skrár innihalda hlutfall úrgangs hvers flokks sem fór í endurnýtingu það ár.
- Byggingar- og niðurrifsúrgangur, endurnýting
- Heimilisúrgangur, endurvinnsla
- Lífbrjótanlegur úrgangur, urðun
- Raf- og rafeindatækjaúrgangur, endurnýting og endurvinnsla
- Rafhlöður og rafgeymar, endurvinnsla
- Rafhlöðu- og rafgeymaúrgangs, söfnun
- Raftæki, söfnun á íbúa
- Raftæki, hlutfall söfnunar
- Umbúðaúrgangur, endurnýting og endurvinnsla
- Úr sér gengin ökutæki, endurnýting og endurvinnsla