Stök frétt

Í nýlegri stefnumótun Umhverfisstofnunar setti stofnunin sér markmið sem eiga að styðja við þróun í átt að grænna samfélagi. Sem liður í þeirri vinnu hefur Umhverfisstofnun nú að eigin frumkvæði tekið saman lista yfir öll fyrirtæki eða stofnanir sem eru með vottað umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt ISO 14001, en þetta er í fyrsta sinn sem slíkur listi er tekin saman á Íslandi. Listinn verður uppfærður reglulega. Á næstu árum verður haldið áfram á sömu braut við eflingu græns hagkerfis, en fyrirhugað er að kynna fyrir stofnunum hvernig hægt er að ná árangri í grænum rekstri og að útbúa leiðbeiningar um vottunarkerfin EMAS og ISO 14001 fyrir lítil fyrirtæki. 

Umhverfisstjórnunarkerfi

Að vera með vottað umhverfisstjórnunarkerfi þýðir að búið er að skilgreina hverjir eru helstu umhverfisþættir starfseminnar og hvaða umhverfisáhrif hljótast af þeim. Í kjölfarið þarf að fylgjast reglulega með þessum þáttum og setja sér markmið um að draga úr umhverfisáhrifum. Líkt og í öllum gæðakerfum þá er krafa um að unnið sé eftir ákveðinni stefnumótun og að innra eftirlit og reglubundið rýni sé framkvæmt á öllum ferlum.

Markmiðin sem fyrirtæki setja sér geta verið margvísleg og fara að einhverju leyti eftir starfssemi hvers fyrirtækis fyrir sig. Þó þurfa allir að huga að innkaupum til að tryggja að ekki að sé verið að kaupa óæskileg efni eða í of miklu magni. Fyrirtæki með umhverfisstjórnunarvottun fylgjast líka öll með úrgangsmyndun hjá sér og reyna að lámarka þann úrgang sem verður til í starfsseminni. Fyrirtæki ná oft mjög góðum árangri og má nefna sem dæmi að eftir að Umhverfisstofnun fékk ISO 14001 vottun sína árið 2011 þá hefur flokkun aukist gífurlega og er nú á bilinu 96%-98% af öllum úrgangi flokkaður.

ISO 14001

Staðallinn er einn útbreiddasti staðallinn á þessu sviði og er gefinn út af Alþjóðlegu staðlasamtökunum (ISO). Hann lýsir því hvernig setja má upp árangursríkt umhverfisstjórnunarkerfi, og þar með tvinna saman umhverfislega ábyrgð við reksturinn. Staðallinn setur ekki ákveðnar kröfur um árangur í umhverfismálum, heldur setur fram viðmið og kortleggur áætlun sem fyrirtæki eða stofnanir geta fylgt til að setja upp skilvirkt umhverfisstjórnunarkerfi. 

Eftirfarandi fyrirtæki og stofnanir á Íslandi eru með vottuð umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt ISO 14001 staðlinum (uppfært júlí 2013): 

  • Actavis ehf. 
  • Actavis Group PTC ehf. 
  • Alcoa Fjarðaál
  • Alta ehf.
  • Árvakur/Landsprent ehf. 
  • Borgarplast hf. 
  • EFLA verkfræðistofa hf. 
  • Flügger ehf. 
  • Gámaþjónustan hf. 
  • Hópbílar hf./Hagvagnar hf. 
  • Höldur ehf. Bílaleiga Akureyrar 
  • Icelandair hótel Reykjavík Natura 
  • Íslenska Gámafélagið ehf. 
  • Jarðboranir hf. 
  • Landsvirkjun 
  • Mannvit hf. 
  • N1 hf. starfsstöðvar:
            Þjónustustöð Bíldshöfða 2
            Verkstæði Bíldshöfða 2
            Þjónustustöð Fossvogi
            Þjónustustöð Hringbraut
            Þjónustustöð Borgartúni
            Þjónustustöð Háholt Mosfellsbæ 
  • Orkuveita Reykjavíkur sf. 
  • Reykjavík Excursions - Kynnisferðir ehf. 
  • Reykjavik Geothermal Ltd. 
  • Reykjavíkurborg - Umhverfis- og skipulagssvið 
  • Rio Tinto Alcan/ISAL 
  • Ræstingarþjónustan sf. 
  • Steinull hf. 
  • Toyota á Íslandi hf. 
  • Umhverfisstofnun 
  • Verkís hf. 
  • Vífilfell hf. 
  • VSÓ ráðgjöf ehf. 
  • Össur hf. 

 Ef einhver fyrirtæki hafa ekki ratað á listann má senda póst á ust@ust.is og þá verður listinn að sjálfsögðu uppfærður.