Veiðifrétt

28.07.2020 00:40

28. júlí 2020

Þokkalegt veður til hreindýraveiða, logn og smá rigning á Héraði. Siggi Aðalsteins með einn á sv. 2, fellt við Halldórsvatn í Klausturselsheiði, Reimar með einn á sv. 2, fellt í Gilsárdal, úr 9 tarfa hópi. Einar Axelsson með einn á sv. 2, Jón Egill með einn á sv. 3, fellt í Loðmundarfirði, Sævar með tvo á sv. 5, fellt í Öskjubotni úr 20 tarfa hópi, Ómar með tvo á sv. 6, fellt í Ytri Hraundal í Breiðdal, þar voru 15 tarfar.
Til baka