Um markmið og starfsemi Umhverfisstofnunar
Umhverfisstofnun
Umhverfisstofnun starfar samkvæmt lögum nr. 90/2002 um Umhverfisstofnun. Hlutverk hennar er að stuðla að velferð almennings með því að beita sér fyrir heilnæmu umhverfi, öruggum neysluvörum og verndun og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda.
Stefna Umhverfisstofnunar
Umhverfisstofnun hefur sett sér stefnu til fimm ára þar sem sett eru tíu markmið sem stofnunin mun leggja áherslu á að ná fram til ársins 2012. Verkefni tengd markmiðunum eru tilgreind í ársáætlun stofnunarinnar sem er gefin út í upphafi hvers árs og farið yfir árangur hvers árs í ársskýrslu.
Markmið Umhverfisstofnunar 2008-2012
- Draga úr losun gróðurhúsaloftegunda á Íslandi
- Draga úr losun heilsuskaðlegra efna og efna sem eru hættuleg umhverfinu
- Gera upplýsingar um umhverfismál aðgengilegar almenningi og hagsmunaaðilum og gera þeim þannig kleift að hafa áhrif á umhverfi sitt
- Vinna að vernd, viðhaldi, endurheimt og nýtingu þeirra auðlinda sem felast í náttúru Íslands, byggt á sjónarmiðum um líffræðilega fjölbreytni, varðveislu jarðmyndana og landslagsheilda
- Stuðla að verndun og sjálfbærri nýtingu villtra dýrastofna
- Kynna rétt almennings til að njóta útivistar í náttúrunni og með því bæta og tryggja lýðheilsu landsmanna
- Vistkerfisnálgun verði beitt við heildstæða stjórnun á umhverfi í vatni og hafi
- Draga úr myndun úrgangs og auka endurvinnslu hans
- Stjórnsýsla stofnunarinnar verði skýr og skilvirk
- Umhverfismerkingar leiði innkaup almennings og fyrirtækja

Leiðarljós
- Mannauðsmál - Stofnunin hafi á að skipa hæfustu starfsmönnum á sínum sérsviðum. Vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og jafnréttis gætt.
- Endurmenntun - Starfsmenn sinni sí- og endurmenntun í samræmi við metnaðarfulla menntastefnu stofnunarinnar.
- Starfsumhverfi - Vinnustaðurinn bjóði upp á fremstu aðstöðu og örvandi starfsumhverfi.
- Sýnileiki - Starfsmenn og aðstaða sé vel merkt stofnuninni.
- Fræðsla - Starfsmenn stofnunarinnar verði virkir við fræðslu og greinaskrif um málefni tengd stofnuninni. Fræðslufyrirlestrar verði úti í fyrirtækjum.
- Fjármál - Stofnunin viðhafi nútímaleg vinnubrögð og gagnsæi í fjármálastjórnun
Megingildi stofnunarinnar
Fagmennska - tekið er á málefnum sem berast stofnuninni af yfirgripsmikilli þekkingu og með faglegum hætti
Traust - Umhverfisstofnun njóti trausts meðal fyrirtækja, almennings og stjórnmálamanna
Ábyrgð - stofnunin er ábyrgur aðili í verndun náttúrunnar og stuðlar að heilsusamlegu umhverfi landsmanna

