Starfsleyfi
Umhverfisstofnun hvetur umsækjendur um starfsleyfi til að senda umsóknir sínar til stofnunarinnar með a.m.k. 8 mánuðum áður en fyrirhugað er að starfsemi hefjist.
Umhverfisstofnun hefur sett sér viðmið um 180 daga afgreiðslufrest á starfsleyfum fyrir mengandi starfsemi skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 og meðhöndlun úrgangs samkvæmt lögum þar um nr. 55/2003. Þar með er talinn kynningartími starfsleyfistillögu og úrvinnsla í kjölfar þess.
Stofnunin bendir á að umsækjandi um starfsleyfi getur sjálfur haft áhrif á málshraða stofnunarinnar og kostnað sinn af vinnslu starfsleyfis með því að:
- Umsókn sé skýr og greinargóð.
- Gæta að því að öll nauðsynlegt gögn fylgi með umsókn sbr. reglugerð um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem haft getur í för með sér mengun, nr. 785/1999 og þegar um er að ræða. förgun úrgangs: reglugerð um brennslu úrgangs nr. nr. 739/2003 og reglugerð um urðun úrgangs 736/2003. Upplýsingar um reglugerðir á vef Umhverfisstofnunar.
- Umsækjandi kynni sér starfsleyfistillögu stofnunarinnar ítarlega um leið og hún berst honum.
- Viðbótargagna sé aflað eins fljótt og unnt er sé þeirra óskað.




