Efni

Hér er að finna aðgengilegar upplýsingar um efni og efnavöru, gildandi lög og reglur, leiðbeiningar, umsóknir og annað það sem fyrirtæki er starfa með efni og efnavörur þurfa á að halda.
Umhverfisstofnun hefur umsjón með
- reglugerðum
- innleiðingu á gerðum vegna aðildar að EES
- kynningu og útgáfum á fræðsluefni
- veitingu leyfa til garðaúðara og meindýraeyða
- heldur utan um skráningu varnarefna til notkunar hérlendis og skráningar efna til markaðssetningar og notkunar á Evrópska efnahagssvæðinu þar með talin sæfiefni
- umsögn stofnunarinnar þarf fyrir leyfi til innflutnings og sölu eiturefna og varnarefna og heimild fyrir innflutningi á eiturefnum í hvert skipti
- eftirliti með innflutningi eiturefna og yfirumsjón með eftirliti á vegum Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga hvað varðar sölu og meðhöndlun á efnavöru




