Hverfjall (Hverfell) er í röð fegurstu og reglubundnustu öskugígamyndana sem gefur að líta á Íslandi og talinn í röð þeirra stærstu sinnar tegundar á jörðinni.Meira
Tími trjámaðksins er í lok maí eða fyrri hluta júní á hverju ári. Þá fer hann á stjá í görðum landsmanna og margir garðeigendur spyrja sig: Þarf ég að...





Seljahjallagil, Bláhvammur, Þrengslaborgir og nágrenni í Skútustaðahreppi var friðlýst sem náttúruvætti árið 2012.
Dimmuborgir eru friðlýstar vegna sérstakra hraunmyndana og landslags.
Hvanneyri var fyrst friðlýst sem búsvæði árið 2002 en árið 2011 var búsvæðið stækkað og fékk nafnið Andakíll. Stærð búsvæðisins er 3085,3 ha.
Steðji stendur á hól er kallast Skeiðhóll við Hvammsfjall í Hvalfirði. Friðlýsta svæðið er u.þ.b. 7 ha. að stærð
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull stofnaður 28. júní árið 2001. Heillandi náttúra og merkar sögulegar minjar urðu til þess að ákveðið var að friðlýsa svæðið.
Hraunfossar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1987. Hraunfossar eru fagrir lindárfossar sem falla hvítfyssandi undan Hallmundarhrauni niður í Hvítá. Stærð náttúruvættisins er 36,1 ha.
Grábrókargígar voru fyrst friðlýstir árið 1962 en friðlýsingunni var breytt árið 1975. Gígarnir eru tveir, Stóra- og Litla Grábrók. Stærð náttúruvættisins er 28,7 ha.
Bárðarlaug var friðlýst sem náttúruvætti árið 1980. Bárðarlaug er lítil sporöskjulaga tjörn í fögrum gjallgíg vestan við veginn að Hellnum. Þar segir sagan að Bárður Snæfellsás hafa baðað sig.
Sérstaklega formfagur eldgígur. Hann er sporöskjulaga, 200 m að lengd og 50 m á dýpt. Þar hafa orðið tvö gos, það síðara sennilega á landnámsöld. Stærð náttúruvættisins er 125 ha.
Vatnshornsskógur var friðlýstur árið 2009. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda náttúrulegan, lítt snortinn og hávaxinn birkiskóg með gróskumiklum botngróðri, ásamt erfðaeiginleika og erfðafjölbreytileika íslenska birkisins. Stærð friðlandsins er 247,1 ha.
Ströndin við Stapa og Hellnar var friðlýst árið 1979. Margar fagrar og sérkennilegar bergmyndanir er að finna við sjó á þessum slóðum.
Melrakkaey var friðlýst árið 1971. Melrakkaey er smáeyja útaf Grundarfirði og er markmið friðlýsingarinnar að vernda fuglalíf eyjunnar. Stærð friðlandsins er 7,3 ha.
Grunnafjörður var friðlýstur árið 1994 og er svæðið friðland. Tilgangur friðlýsingarinnar var að vernda landslag og lífríki svæðisins, sér í lagi fuglalíf sem er mjög auðugt. Stærð friðlýsta svæðisins er 1393 hektarar.
Geitland var friðlýst árið 1988. Svæðið einkennist af víðáttumiklu hraun- og sandflæmi sem á upptök sín í gígaþyrpingu í rótum Langjökuls. Stærð friðlandsins er 12.281,7 ha.
Blautós og Innstavogsnes var friðlýst árið 1999 og var tilgangur friðlýsingarinnar að vernda landslag og lífríki svæðisins, en þar er að finna auðugt fuglalíf.
Búðahraun var friðlýst árið 1977. Svæðið einkennist af úfnu hrauni og fjölbreyttum gróðri.
Friðlandið var stofnað 1975. Þar er að finna feikna há fuglabjörg eru iðandi af sjófugli.
Dynjandi var friðlýstur árið 1981. Fossinn ber nafn með rentu því drunurnar úr honum berast langar leiðir. Stærð náttúruvættisins er 644,9 ha
Hrísey var friðlýst árið 1977. Grösug eyja úti fyrir Reykhólasveit. Stærð friðlandsins er 25,7 ha.
Stutt er síðan að í Flatey var blómlegt athafnalíf. Í Flatey hefur verið verslun frá því á miðöldum og hún er fræg fyrir handrit sem kennt er við hana (Flateyjarbók).
Reykjanesfólkvangur var friðlýstur sem fólkvangur árið 1975. Mikið er um jarðhitasvæði og margskonar náttúruminjar innan fólkvangsins. Stærð fólkvangsins er 29.262 ha
Rauðhólar voru friðlýstir sem fólkvangur árið 1974. Stærð fólkvangsins er 130,2 ha.
Ástjörn og Ásfjall var friðlýst sem fólkvangur árið 1996. Fólkvangurinn umlykur friðland Ástjarnar en Ástjörn og svæðið umhverfis hana var friðlýst árið 1978. Stærð fólkvangsins er 56,9 ha.
Víghólar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1983. Þar er að finna jökulsorfnar grágrýtis klappir, svokölluð hvalbök. Stærð náttúruvættisins er 1,4 ha.
Valhúsahæð var friðlýst sem náttúruvætti árið 1998. Á Valhúsahæð er rákað berg eftir ísaldarjökul. Stærð náttúruvættisins er 1,7 ha.
Tröllabörn voru friðlýst sem náttúruvætti árið 1983. Náttúruvættið einkennist af sérkennilegum hraundrýlum (hornító) sem hafa verið notuð sem fjárskýli og jafnvel sem sæluhús. Stærð náttúruvættisins er 4,7 ha.
Laugarás var friðlýstur sem náttúruvætti árið 1982. Ástæða friðlýsingar svæðisins var að halda opnu svæði þar sem unnt er að skoða jökulrispað berg en svæðið er dæmi um ísaldarminjar. Stærð náttúruvættisins er 1,5 ha.
Kaldárhraun og Gjárnar í Hafnarfirði voru friðlýst sem náttúruvætti árið 2009.
Háubakkar voru friðlýstir árið 1983. Á Háubökkum finnast þykk og afar merkileg setlög, sennilega um 200 þúsund ára gömul. Stærð náttúruvættisins er 2,1 ha.
Hamarinn var friðlýstur sem náttúruvætti árið 1984. Á Hamrinum eru jökulminjar. Stærð náttúruvættisins er 2,1 ha.
Fossvogsbakkar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1999. Fossvogslögin finnast á um 2 km langri strandlínu í 3-5 m háum sjávarhömrum. Stærð náttúruvættisins er 17,8 ha.
Eldborg undir Geitahlíð var friðlýst árið 1987. Eldborg er hluti af gjallgígaröð og er Stóra-Eldborg meðal fegurstu gíga Suðvesturlands.
Eldborg er einn þriggja gíga af eldborgargerð hjá Kóngsfelli. Eldborg var friðlýst sem náttúruvætti árið 1971.
Borgir voru friðlýstar sem náttúruvætti árið 1981. Stærð náttúruvættisins er 2,8 ha en umhverfis friðlýsta svæðið afmarkast svokallað jaðarsvæði og er stærð þess 1,3 ha.
Vífilsstaðavatn og nágrenni var friðlýst sem friðland árið 2007. Stærð friðlandsins er 188,3 ha.
Varmárósar voru friðlýstir árið 1980. Gróskumikið flæðiland og sjávarfitjar með miklu fuglalífi. Innan friðlandsins vex fitjasef (Juncus gerardii) og er annar af tveimur fundarstöðum tegundarinnar á Íslandi. Stærð friðlandins er 9,6 ha.
Grótta var friðlýst árið 1974. Grótta er í raun eyja sem tengd er við land af mjóum granda sem fer á kaf á flóði.
Ástjörn og svæðið umhverfis hana var friðlýst árið 1978.
Bakkatjörn var friðlýst árið 2000. Bakkatjörn er ísölt tjörn og hefur svo verið frá um 1960 þegar lokað var fyrir leirvog sem þar var. Stærð friðlandsins er 14,9 ha.
Þingvellir, Þingvallahreppi, Árnessýslu. Friðlýst samkvæmt lögum nr. 47/2004. Svæðið er í umsjá Þingvallanefndar sem starfar undir Alþingi. Stærð 22.788,7 ha.
Skógafoss var friðlýstur sem náttúruvætti árið 1987. Svipmikill 60 m hár foss, sá neðsti í fagurri fossaröð Skógaár.
Kirkjugólf var friðlýst sem náttúruvætti árið 1987. Svæðið einkennist af lágri stuðlabergsklöpp. Endi stuðlabergsdranganna sem snúa upp úr jörðu.
Dverghamrar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1987. Sérkennilegir og fagurformaðir stuðlabergshamrar. Ofaná stuðlunum er víða svokallað kubbaberg. Stærð náttúruvættisins er 2,14 ha.
Álftaversgígar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1975. Víðáttumiklar strýtu- og hólaþyrpingar. Tilgáta segir að sjóðheit gufa hafi mótað drýlin þegar hún leitaði upp úr skorpunni.
Þjórsárver voru fyrst lýst friðland árið1981 og friðlýsingin var endurskoðuð árið 1987.
Surtsey er útvörður Íslands í suðri og ein af úteyjum Vestmannaeyja.
Oddaflóð var friðlýst árið 1994. Votlendi með miklu fuglalífi. Stærð friðlandsins er 568,4 ha.
Herdísarvík var friðlýst árið 1988. Fjölskrúðugt dýralíf er í víkinni. Fyrrum var víkin kunn verstöð og enn má sjá rústir þeirra.
Gullfoss var friðlýstur árið 1979. Markmiðið með friðlýsingu Gullfoss var að friða fossinn og gljúfrið neðan hans og leyfa fólki að njóta þessara náttúruundra.
Friðland að Fjallabaki var friðlýst árið 1979. Tilgangur friðlýsingar er að varðveita sérstök landsvæði þannig að komandi kynslóðir hafi tækifæri til að njóta þeirra á sama hátt og við gerum. Friðlandið er 44633,4 ha og er allt ofan 500 metra hæðar yfir sjó
Dyrhóley var friðlýst árið 1978.
Spákonufellshöfði í Höfðahreppi var friðlýstur fólkvangur í árið 1980. Stærð fólkvangsins er 22,5 ha.
Kattarauga var friðlýst sem náttúruvætti árið 1975. Tjörnin Kattarauga er alldjúpur pyttur sem í eru tveir fljótandi hólmar sem reka undan vindi. Stærð náttúruvættisins er 0,01 ha.
Hveravellir var friðlýst sem náttúruvætti 1960 og var friðlýsingin endurskoðuð árið 1975.
Miklavatn var friðlýst árið 1977. Svæðið einkennist af votlendi með miklu fuglalífi. Stærð friðlandsins er 1.484,5 ha.
Mývatn og Laxá eru upphaflega friðlýst með lögum um verndun Mývatns og Laxar í Suður-Þingeyjarsýslu árið 1974.
Kúluskítur var friðlýstur sem tegund árið 2006. Markmið friðlýsingarinnar er að tryggja vöxt og viðgang kúluskíts og vernda hann fyrir röskun en hann er mjög sjaldgæfur og hefur fáa þekkta vaxtarstaði hér á landi.
Dettifoss, Selfoss, Hafragilsfoss svo og næsta nágrenni þeirra austan Jökulsár á Fjöllum var friðlýst sem náttúruvætti árið 1996.
Skútustaðagígar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1973. Gervigígaþyrping við sunnanvert Mývatn. Stærð náttúruvættisins er 69,9 ha.
Markmið friðlýsingarinnar er að vernda einstök náttúrufyrirbrigði sem felst í myndun hverastrýtanna, efnasamsetningu, útliti og lögun ásamt örveruvistkerfi sem þar þrífst við óvenjulegar aðstæður.
Vestmannsvatn var friðlýst árið 1977. Vatnið er grunnt með iðjagrænum bökkum og hólmum og fjölskrúðugu fuglalífi.
Herðbreiðarlindir voru friðlýstar árið 1974. Stærð friðlandsins er 16.361 ha.
Ósland var friðlýst sem fólkvangur árið 1982 og var friðlýsingin endurskoðuð árið 2011. Stærð fólkvangsins er 16,9 ha.
Fólkvangur Neskaupsstaðar var friðlýstur árið 1972. Vinsælt útivsistarsvæði í útjaðri bæjarins. Fróðleik um náttúrufar svæðisins hefur verið komið fyrir á lítil skilti meðfram gönguleiðinni.
Álfaborg var friðlýst sem fólkvangur árið 1976. Eins og nafnið bendir til Álfaborgin bústaður álfa. Stærð fólkvangsins er 8,9 ha.
Háalda var friðlýst sem náttúruvætti árið 1975. Svæðið er jökulalda mikil milli Sandfells og Hofs. Hlaupset sem varð til í jökulhlaupi við gos 1727 í Öræfajökli. Þetta fyrirbæri er dæmigert dauðíslandslag. Jökulkerið í öldunni er far eftir ísjaka. Stærð náttúruvættisins er 4,9 ha.
Innfjöll með Eskifelli, Kjarrdalsheiði, Kollumúla og Víðidal voru friðlýst samkvæmt náttúruverndarlögum í ársbyrjun 1977. Friðlandið á Lónsöræfum er eitt af strærstu verndarsvæðum landsins, 34.528,1 ha að flatarmál
Hvannalindir voru friðlýstar árið 1973.
Salthöfði og Salthöfðamýrar voru friðlýstar árið 1977. Höfðinn er berggangur eða gígtappi sem til forna hefur verið sjávarhamrar. Stærð friðlandsins er 230,7 ha.
Hólmanes er friðlýst bæði sem friðland og fólkvangur. Breyting á vegi veldur auknu aðgengi. Svæðið er vinsælt útivistarsvæði. Samtals er stærð svæðisins 318 ha.

Einn starfsmaður starfar allt árið á Mývatnsstofu en fleiri bætast við yfir sumartímann í landvörslu. Sérfræðistörf um verndarsvæðin Mývatn og Laxá eru megin svarfssvið hans svo og yfirumsjón með landvörslu yfir sumartímann.






