Skilti og merkingar
Handbók um merkingar á friðlöndum og ferðamannastöðum
Handbókin er samstarfsverkefni Vatnajökulsþjóðgarðs, Umhverfisstofnunar, Ferðamálastofu og Þingvallaþjóðgarðs. Handbókin þjónar sem hönnunarstaðall fyrir aðildarstofnanirnar en er jafnframt ætluð öllum þeim sem koma að mótun umhverfis ferðamanna á Íslandi.
Meginhlutverk handbókarinnar
- Að samræma merkingar á ferðamanna- og náttúruverndarsvæðum
- Að leiðbeina um notkun táknmynda og texta, ásamt framleiðslu og uppsetningu skilta
- Að einfalda aðgengi að gögnum og táknmyndum við skiltagerð
- Að stuðla að notkun íslenskrar hönnunar og framleiðslu við merkingar á ferðamannastöðum
- Að móta skiltakerfi sem hentar íslenskum aðstæðum og krefst lágmarks viðhalds
- Að móta sveigjanlegt skiltakerfi sem auðvelt er að breyta og bæta við
Handbókin verður uppfærð reglulega hér á vefnum í takt við endurbætur og uppfærslu gagna. Hér má hlaða niður handbókinni til afnota, skoða vefútgáfu og sækja táknmyndir og vinnsluteikningar fyrir framleiðendur.
Handbókin
- Stakar síður (PDF)
- Opnur (PDF)
- Vefútgáfa
- Táknmyndir (PDF)
- Framleiðsluteikningar (ZIP á dwg og dxf formi)





