Stök frétt

Opin hugmyndasamkeppni var haldin á vegum Umhverfisstofnunar í samvinnu við Arkitektafélag Íslands um umhverfi Gullfoss. 

Dómnefnd hefur lokið störfum og voru verðlaun afhent fimmtudaginn 20. desember síðastliðinn. 

Um keppnina 

Um það bil 80% þeirra sem sækja Ísland heima koma að Gullfossi. Árið 2011 komu u.þ.b. 567.000 ferðamenn og er áætlað að þeim fjölgi árið 2012. Til þess að umhverfi Gullfoss skaðist ekki við aukin átroðning hefur verið farið í ýmis konar framkvæmdir s.s. uppbyggingu göngustíga. Til þess að undirbúa svæðið fyrir áframhaldandi fjölgun ferðamanna mun þurfa að deiliskipuleggja friðlýsta svæðið umhverfis Gullfoss og hlaut Umhverfisstofnun styrk árið 2012 úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða hjá Ferðamálastofu til þess að halda hugmyndasamkeppni um svæðið. 

Markmið með samkeppninni var að fá fram heildarsýn á allar samgöngur og móttökusvæði innan samkeppnissvæðisins og taldi stofnunin mikilvægt að hugmyndir þátttakenda væru í anda sjálfbærrar þróunar.

  • Að fram kæmu áhugaverðar, frumlegar og metnaðarfullar lausnir í anda sjálfbærrar þróunar.
  • Að góð og raunhæf heildarlausn myndi nást varðandi yfirbragð aðkomusvæðis, göngustíga, hringleiða, áningastaða og allra þeirra innviða/útihúsgagna sem beðið var um, svo sem stiga, bekkja, íláta fyrir flokkað sorp og skilta.
  • Að allar framkvæmdir yrðu hannaðar með það fyrir augum að þær féllu vel að umhverfinu á Gullfoss – svæðinu og spilltu ekki þeirri náttúru sem þar er.
  • Að fram kæmu spennandi nýjungar fyrir umhverfi ferðamannastaða. 

Verðlaunahafar eru eftirfarandi 

1. VERÐLAUN 

Hlaut tillagan: ALDIR RENNA

Tillagan Aldir renna, síða 1 Tillagan Aldir renna, síða 2

Höfundar: Eyrún Margrét Stefánsdóttir arkitekt og María Björk Gunnarsdóttir arkitekt

Dómnefndarálit: Keppendur hafa greinilega sett sig vel inn í staðhætti. Heildarsýn er ágæt og rökstudd með nákvæmri staðháttargreiningu. Keppendur sýna í tillögunni nákvæman og blæbrigðaríkan skilning á umhverfinu. 

Útsýnisstaðurinn Tómas er vel valinn m.t.t. útsýnis og fleiri þátta sem máli skipta. Leiðir að nýjum útsýnisstöðum og nýjum tengingum eru fjölbreyttar og spennandi og benda á nægan efnivið til úrvinnslu í framtíðinni. Tillaga að nýjum útsýnisstað umhverfis svonefndan Hvít er vel útfærð en heppilegt hefði verið að sjá tengingu til norðurs við aðra göngustíga.

2. VERÐLAUN 

Hlaut tillagan: Hringferð um Gullfoss 

Höfundar: R21 arkitekter: Bergur Thorsteinsson Briem arkitekt, Thomas Thorsnes arkitekt, Martin Smedsrud arkitekt 

Dómnefndarálit: Keppendur hafa greinilega sett sig vel inn í staðhætti, þa.e. staðháttargreining er nákvæm og sýnir ítarlega landslagsgreiningu sem er til fyrirmyndar. Lausnin er einföld og sveigjanleg og gæti vel nýst sem fyrirmynd að lausnum á öðrum stöðum og í ólíku umhverfi. Tröppur og útsýnispallur virðast raunhæfar og traust mannvirki án þess að vera yfirþyrmandi. 

3. VERÐLAUN 

Hlaut tillagan: GULLFOSS 

Höfundar: Birgir Þröstur Jóhannsson arkitekt FAÍ, Laurent Ney verkfræðingur, Vincent Dister verkfræðingur, Snæfríð Þorsteins iðnhönnuður 

Dómnefndarálit: „Svífandi göngustígar“ virðast burðarfræðilega vel útfærðir og samræmast vel tilgangi samkeppninnar um afturkræfni framkvæmda. Áhugavert er að endurvekja útsýnisstað við svonefnda Heljarbrú. Rökstuðning um efnisval m.t.t. sjálfbærni er haldgóður. 

Verðlaun 

  • 1. verðlaun eru 1.500.000 krónur 
  • 2. verðlaun eru 800.000.00 krónur 
  • 3. verðlaun eru 400.000.00 krónur 

Dómnefnd skipuðu 

  • Kristín S. Jónssdóttir, Umhverfisstofnun – formaður 
  • Tryggvi Tryggvason, fulltrúi Félags íslenskra landslagsarkitekta 
  • Svavar Njarðarson, fulltrúi landeigenda 
  • Pétur Ingi Haraldsson, fulltrúi Bláskógabyggðar 


Verðlaunahafar og dómnefnd ásamt Kristínu Lindu forstjóra Umhverfisstofnunar

Verðlaunahafar og dómnefnd ásamt Kristínu Lindu forstjóra Umhverfisstofnunar

Keppnislýsingin á umhverfisstofnun.is