Staðbundinn iðnaður
Stofnun viðskiptakerfisins með tilskipun 2003/87/EB fól í sér að losun koldíoxíðs (CO2) frá tiltekinni stóriðjustarfsemi var gerð háð losunarheimildum frá 1. janúar 2005. Á tímabilinu 2008-2012 nær kerfið m.a. til orkuframleiðslu með brennslu jarðefnaeldsneytis, járnframleiðslu og járnvinnslu, jarðefnaiðnaðar og pappírsframleiðslu, sbr. viðauka I við tilskipunina. Hvorki álframleiðsla né járnblendi fellur undir gildissvið tilskipunarinnar á tímabilinu 2008-2012.
Ríki ákveða sjálf hversu mörgum losunarheimildum þau úthluta á tímabilinu 2008-2012 og ber þeim að gera grein fyrir því í landsbundinni úthlutunaráætlun fyrir allt tímabilið í heild. Úthluta skal a.m.k. 90% losunarheimilda án endurgjalds á tímabilinu og er ríkjum því frjálst að bjóða 10% heimilda upp.
Tilskipun 2003/87/EB og tengdar gerðir voru teknar upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2007 í október 2007. Vegna þess hve lítil starfsemi hér á landi fellur undir gildissvið tilskipunarinnar á tímabilinu 2008-2012 var samið um undanþágu fyrir Ísland við afgreiðslu málsins í sameiginlegu EES-nefndinni. Undanþágan felur í sér að lögaðilum hér á landi sem heyra undir gildissvið tilskipunarinnar er ekki skylt að afla losunarheimilda. Skilyrði þess eru þó að árleg losun frá starfsstöðvum þeirra sé innan við 25 þúsund tonn koldíoxíðsígilda og að íslensk stjórnvöld sýni Eftirlitsstofnun EFTA fram á markmiðum tilskipunarinnar verði náð með öðrum hætti hér á landi. Íslensk stjórnvöld hafa af þessum sökum ekki úthlutað losunarheimildum á grundvelli tilskipunarinnar. Hér á landi var á hinn bóginn komið upp sérstöku úthlutunarkerfi losunarheimilda með lögum nr. 65/2007 um losun gróðurhúsalofttegunda sem er rekið óháð viðskiptakerfi ESB og tekur til losunar koldíoxíðs frá iðnaðarstarfsemi sem losar 30 þúsund tonn koldíoxíðs eða meira á ári.
Nýverið var gildissvið tilskipunar 2003/87/EB rýmkað umtalsvert með tilskipun 2009/29/EB. Breytingin er þýðingarmikil fyrir Ísland því að hún felur í sér að losun koldíoxíðs og flúorkolefna (PFC) frá álframleiðslu og losun koldíoxíðs frá járnblendi mun heyra undir kerfið og vera háð losunarheimildum frá 1. janúar 2013. Tilskipun 2009/29/EB felur að auki í sér gagngerar breytingar á reglum um úthlutun losunarheimilda og eykur vald stofnana bandalagsins við framkvæmd kerfisins á kostnað aðildarríkja. Þá er gert ráð fyrir að hlutfall losunarheimilda sem boðnar eru upp aukist smám saman og verði orðið 100% árið 2027. Tilskipun 2009/29/EB er ekki enn orðin hluti EES-samningsins en búast má við að hún verði tekin til afgreiðslu sameiginlegu EES-nefndarinnar á næstu mánuðum.
Þann 27. janúar 2011 hélt Umhverfisstofnun samráðs- og kynningarfund með aðilum í iðnaðarstarfsemi. Hér má nálgast glærur af fundinum. Og hér er að finna drög að ákvörðun um árangursviðmið, eins og þau voru samþykkt í Climate Change Committee þann 15.12.2010, en þessi drög voru rædd á fundinum.
Fyrir nánari upplýsingar, hafið samband við ets-industry@ust.is




