Tilgangur:
Framkvæmd og helstu niðurstöður:
Verkefnið náði til allra plöntuverndarvara sem einungis eru ætluð til notkunar í atvinnuskyni og nagdýraeiturs sem sömuleiðis eru einungis til notkunar í atvinnuskyni. Umhverfisstofnun óskaði eftir skrám vegna sölu á þessum vörum á árinu 2016 þar sem fram kæmu eftirfarandi upplýsingar: vöruheiti, umbúðastærð, fjöldi seldra eininga af hverri umbúðastærð, dagsetning sölu, nafn og kennitala notendaleyfishafa, sem og nafn og kennitala fyrirtækis, ef við átti.
Eftirfarandi fyrirtæki féllu undir umfang verkefnisins:
Á árinu 2016 voru 31 plöntuverndarvörur sem eingöngu eru til notkunar í atvinnuskyni seldar, nam salan alls 5.918 kg og vógu virku efni þessara vara samtals 2.177 kg. Af nagdýraeitri voru seldar 7 vörur og nam salan alls 5.027 kg og vógu virku efni þessara vara samtals 0,3 kg þar sem styrkur virku efnanna í vörunum er einungis 0,005%.
|
Plöntuverndarvörur |
Nagdýraeitur |
Fjöldi vara í sölu |
31 |
7 |
Fjöldi virkra efna |
33 |
2 |
Sala alls af vörum |
5.918 kg |
5.027 kg |
Sala alls (sem magn af virku efni) |
2.177 kg |
0,3 kg |
Eingöngu má afhenda tiltekin varnarefni til notkunar í atvinnuskyni til aðila sem hafa gild notendaleyfi frá Umhverfisstofnun. Niðurstöður sem fást úr verkefninu sýna að rúmlega helmingur þeirra sem keyptu plöntuverndarvörur á árinu 2016 voru ekki með leyfi í gildi. Af þeim voru 39% með leyfi í gildi, 9% voru með útrunnin leyfi og 52% höfðu aldrei verið með leyfi. Mun hærra hlutfall kaupenda að nagdýraeitri var með leyfi í gildi eða 99% og einundis 1% sem var með útrunnið leyfi við kaup.
|
Notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum |
Notendaleyfi fyrir útrýmingarefnum |
||
|
fjöldi |
% |
fjöldi |
% |
Kaupandi með leyfi í gildi |
61 |
39% |
74 |
99% |
Kaupandi með útrunnið leyfi |
14 |
9% |
0 |
0% |
Kaupandi aldrei haft leyfi |
80 |
52% |
1 |
1% |
Kaupendur alls |
155 |
75 |
Líkt og í verkefnum fyrri ára kemur enn í ljós að stór hluti þeirra sem kaupa plöntverndarvörur, til notkunar í atvinnuskyni, hafa ekki gild notendaleyfi við kaup. Það er á ábyrð þeirra sem markaðssetja vörurnar að afhenda þær eingöngu þeim aðilum sem hafa notendaleyfi í gildi. Verða hlutaðeigandi fyrirtæki upplýst um málið og þeim bent á ábyrgð sína.